Logo Competition

The Competition Authority invites submissions for an investigation into the management and ownership structures of companies in the fisheries sector – Information page opened

17. April 2023

Í október síðastliðnum greindi Samkeppniseftirlitið frá ákvörðun um að hefja athugun á stjórnunar- og eignatengslum í íslenskum sjávarútvegi. Niðurstöður athugunarinnar verða settar fram í sérstakri skýrslu, en gert er ráð fyrir að hún liggi fyrir í lok árs 2023.

Vegna athugunarinnar hefur Samkeppniseftirlitið nú opnað upplýsingasíðu á heimasíðu sinni þar sem gerð er grein fyrir athuguninni, undirbúningi og framvindu hennar hingað til, auk þess sem sett er fram áætlun um tilhögun og áfangaskiptingu athugunarinnar héðan í frá (Project plan).

Er þessari upplýsingagjöf ætlað að stuðla að gagnsæi athugunarinnar. Jafnframt er hverjum sem áhuga hefur gefinn kostur á að koma sjónarmiðum og upplýsingum á framfæri.

Á þessu stigi vinnunnar er sjávarútvegsfyrirtækjum, sem og öllum öðrum sem þess óska, gefinn kostur á að tjá sig um verkefnaáætlunina, athugunina eða annað það sem viðkomandi vill koma á framfæri við eftirlitið. Óskað er eftir að slíkar athugasemdir berist Samkeppniseftirlitinu á póstfangið samkeppni@samkeppni.is eigi síðar en 5. maí 2023.

Jafnframt er öllum gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum í tilefni af athuguninni, svo sem um stjórnunar- og eignatengsl sjávarútvegsfyrirtækja, innbyrðis eða gagnvart öðrum atvinnugreinum. Slíkum ábendingum er hægt að koma á framfæri í gegnum gátt á heimasíðu eftirlitsins (nafnlaust ef óskað er), eða með tölvupósti á samkeppni@samkeppni.is.

Á upplýsingasíðunni er meðal annars gerð grein fyrir eftirfarandi:

  • Athugunin og að hverju hún beinist.
  • Fyrirtæki og markaðir sem athugunin tekur til.
  • Helstu áfangar athugunarinnar.
  • Undirbúningur, skipun ráðgjafarhóps og tenging við gagnagrunna.
  • Yfirstandandi gagnaöflun gagnvart sjávarútvegsfyrirtækjum.
  • Framhald athugunarinnar – næstu skref.
  • Lagagrundvöllur athugunarinnar.
  • Heimild Samkeppniseftirlitsins til gagnaöflunar.
  • Þýðing hugtaksins „yfirráð“ við greiningu á stjórnunar- og eignatengslum.
  • Þýðing stjórnunar- og eignatengsla á vettvangi stjórnvalda.

Fiskistofa annast framkvæmd laga
um stjórnun fiskveiða og sinnir eftirliti samkvæmt þeim. Samstarf stofnananna
vegna athugunarinnar er því mikilvægt.

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.