
Vegna sumarleyfa og mikilla anna við rekstur samrunamála sem nú eru til formlegrar meðferðar (þegar tilkynntir samrunar) er fyrirsjáanlegt að tafir verði á afgreiðslu og yfirferð nýrra samrunatilkynninga hjá Samkeppniseftirlitinu í sumar.
Útlit er fyrir að þessi staða verði uppi fram í miðjan ágúst.
Hið sama gildir um samrunamál á forviðræðustigi. Þannig er ólíklegt Samkeppniseftirlitið geti orðið við óskum um nýjar forviðræður eða framhald forviðræðna vegna samruna á sama tímabili.
Samkeppniseftirlitið telur rétt að gera fyrirtækjum og ráðgjöfum þeirra grein fyrir þessu svo hægt sé að taka tillit til framangreinds og gera viðeigandi ráðstafanir.
Framangreint hefur ekki áhrif á yfirstandandi rannsóknir á lögbundnum tímafrestum. Samrunamál og stöðu þeirra má sjá hér.
"*" indicates required fields