Logo Competition

A discussion on competition: A well-attended discussion on the handling of merger cases

3. June 2021
Snowcap Mountain

Þriðjudaginn 1. júní sl. hélt Samkeppniseftirlitið opinn veffund
um meðferð samrunamála, en rúmlega 40 manns tóku þátt í fundinum.

Á fundinum fjallaði Jani Ringborg, sérfræðingur hjá
samkeppnisdeild framkvæmdastjórnar ESB, um rannsókn samrunamála. Einkum rakti
hann fyrirkomulag forviðræðna (e. pre-notification talks), en slíkar viðræður
eiga sér stað í flestum málum á vettvangi framkvæmdastjórnarinnar. Í þessu
sambandi reifaði Jani hvaða gögn lægju til grundvallar slíkum viðræðum, hvaða
tíma viðræðurnar tækju og hverju þær gætu skilað.

Í máli Jani kom fram mikilvægi þess fyrir skilvirka meðferð
samrunamála að samrunaaðilar veiti greinargóðar upplýsingar og gögn í
forviðræðum. Það verklag stuðlar að því að málið sé vel upplýst strax við
mótttöku samrunatilkynningar og um leið gerir það eftirlitinu kleift að
skipuleggja vinnu sína betur.

Einnig reifaði Jani að forviðræður væru vettvangur fyrir
hreinskiptið samtal um gagnaöflun, skipulag rannsóknar og í sumum tilvikum
mögulegar samkeppnishindranir og lausnir á þeim. Jani lagði þó áherslu á að
þess væri ekki að vænta að samkeppnisyfirvöld væru í stakk búin að taka skýra
afstöðu til álitaefna í forviðræðum, enda rannsókn ekki hafin.

Þá kom fram að forviðræður hefðu leitt til þess að fleiri
samrunamál væru afgreidd á I. fasa.

Glærur af fundinum, ásamt upptöku af innleggi Jani Ringborg er
aðgengileg here .

Background information:

Fundurinn var sá þriðji í röð umræðufunda um meðferð
samrunamála:

  • Fyrsti
    fundurinn
    var haldinn þann 16. október 2019, en til grundvallar umræðum á
    þeim fundi lá Memorandum eftirlitsins
    um meðferð samruna, reynslu og úrbótatækifæri.
  • Annar
    fundurinn
    var haldinn þann 11. desember 2020, en á þeim fundi var kallað
    eftir umræðum um drög að nýjum samrunareglum. Höfðu drögin áður verið birt til review og aflað
    sjónarmiða.

Fundurinn nú var haldinn í ljósi fenginnar reynslu af hinum nýju
samrunareglum. Í því sambandi er einnig gagnlegt að leita í reynslubanka
framkvæmdastjórnar ESB, en hún hefur mikla reynslu af meðferð samrunamála.
Samrunareglur samkeppnislaga hér á landi sækja fyrirmynd sína til
samrunareglugerðar ESB.

Þá er rétt að benda á að nýlega birti Samkeppniseftirlitið
pistil á heimasíðu sinni (No. 4/2021), þar sem
meðferð samrunamála hér á landi er borin saman við samrunamál í nágrannalöndum.
Þar kemur m.a. fram að málshraði hér á landi er sambærilegur við málshraða hjá
framkvæmdastjórn ESB, þegar búið er að taka tillit til þess að stór hluti
meðferðar hjá framkvæmdastjórninni á sér stað á vettvangi forviðræðna við
samrunaaðila, þ.e. áður en tímafrestir í málinu byrja að líða.

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.