Logo Competition

The Competition Authority reiterates demands for the separation of the competitive operations of the Icelandic Meteorological Institute.

12 September 2025

Samkeppniseftirlitið hefur beint því til Veðurstofu Íslands að tryggja tafarlausan og skýran aðskilnað samkeppnisrekstrar frá annarri starfsemi stofnunarinnar og birta upplýsingar um þann aðskilnað opinberlega.

Forsaga málsins nær aftur til ársins 2002 þegar samkeppnisráð setti Veðurstofunni skilyrði um fjárhagslegan aðskilnað samkeppnisrekstrar með ákvörðun nr. 13/2002. Þau fyrirmæli byggja á samkeppnislögum og fela m.a. í sér kröfu um sjálfstætt reikningshald, markaðsverðlagningu og gagnsæi í rekstri þess hluta starfseminnar sem er í samkeppni við einkaaðila. Samkeppniseftirlitið telur að þessi fyrirmæli séu áfram í fullu gildi þrátt fyrir síðar sett lög um Veðurstofu Íslands.

Tilefni nýrrar áréttingar eru upplýsingar sem benda til þess að enn sé óljóst af opinberum gögnum hvort farið sé að gildandi skilyrðum um fjárhagslegan aðskilnað. Samkvæmt fyrri ákvörðun samkeppnisyfirvalda ber Veðurstofunni að halda samkeppnisrekstri aðskildum með sjálfstæðu reikningshaldi, en mat eftirlitsins er að núverandi fyrirkomulag uppfylli ekki þær kröfur.

Veðurstofunni hefur verið veittur frestur til að gera grein fyrir úrbótum. Samkeppniseftirlitið áskilur sér jafnframt rétt til frekari athugunar og mögulegrar íhlutunar verði tilefni til. Markmið aðgerða af þessu tagi er að tryggja jafnræði á markaði og að opinber starfsemi raski ekki samkeppni við einkaaðila.

Lesa má erindi Samkeppniseftirlitsins í heild sinni hér.

Lesa ákvörðun nr. 13/2002

 

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.