Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

Due to media coverage of a possible distortion of the competitive position in the field of Íslandspóstur

2. July 2019
Snowcap Mountain

Samkeppniseftirlitinu hafa undanfarið borist fyrirspurnir er varða mögulega skekkingu á samkeppnisstöðu á vettvangi Íslandspósts. Tengjast þær að hluta til nýútkominni skýrslu Ríkisendurskoðunar um Íslandspóst. Af þessu tilefni telur Samkeppniseftirlitið rétt að koma eftirfarandi á framfæri.

1. Um útdeilingu kostnaðar hjá Íslandspósti

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram í málsgrein efst á bls. 43 að við útreikning á kostnaði við þá starfsemi Íslandspósts sem félagið hefur einkarétt á sé gengið út frá því að einkarétturinn standi undir öllum sameiginlegum og föstum kostnaði og að önnur starfsemi, þ.m.t. samkeppnisstarfsemi, sé ekki látin bera neina hlutdeild í slíkum kostnaði. Það skekki samkeppnisstöðu keppinauta.

Af þessu tilefni er rétt að vekja athygli á ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 8/2017, Measures to strengthen the competitive conditions in the postal market, sem byggir á sátt sem Íslandspóstur gerði við Samkeppniseftirlitið. Samkvæmt ákvörðuninni hvíla á Íslandspósti skilyrði sem m.a. er ætlað að stuðla að því að úthlutun kostnaðar félagsins vegna einkaréttarstarfsemi annars vegar og samkeppnisstarfsemi hins vegar eigi sér stað með hlutlægum hætti og raski ekki samkeppni. Í þessu skyni er m.a. mælt fyrir um sérstök rekstraruppgjör fyrir mismunandi samkeppnisstarfssemi Íslandspósts til þess að auðvelda eftirlit með m.a. mögulegri víxlniðurgreiðslu frá einkaleyfisrekstri til samkeppnisstarfsemi. Kveðið er ítarlega á um kostnaðarviðmið og forsendur að baki þessum uppgjörum, þar sem fylgt er fordæmum úr úrlausn sambærilegra mála á Evrópska efnahagssvæðinu. Ljóst er að sú lýsing á kostnaðaruppgjöri sem fram kemur í viðkomandi málsgrein efst á bls. 43 í skýrslu Ríkisendurskoðunar á ekki við um þá aðferðafræði sem kveðið er á um í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins.

Í ákvörðuninni er m.a. kveðið á um að eftirlitsnefnd sé sett á fót. Nefndin hefur það hlutverk að fylgja eftir skilyrðum ákvörðunarinnar. Þannig er það m.a. hlutverk nefndarinnar að leggja mat á uppgjör mismunandi samkeppnisstarfsemi (svokallaðra samkeppnisþátta) Íslandspósts sem nánar er skilgreind. Þetta felur m.a. í sér að leggja mat á hvort þeirri kostnaðarúthlutun sem kveðið er á um í skilyrðunum sé fylgt.

Að fengnum frekari skýringum á ályktunum Ríkisendurskoðunar mun Samkeppniseftirlitið taka afstöðu til þess hvort nauðsynlegt sé að taka uppgjör og þ.m.t. kostnaðarskiptingu Íslandspósts til skoðunar, annað hvort af hálfu eftirlitsnefndarinnar eða Samkeppniseftirlitsins.

2. Um mögulega undirverðlagningu í sendibílaþjónustu

Í frétt í Morgunblaðinu í dag er gefið til kynna að Íslandspóstur undirverðleggi sendibílaþjónustu með ólögmætum hætti. Rétt er í þessu sambandi að benda á að samkvæmt fyrrgreindri ákvörðun nr. 8/2017 er Íslandspóstur, eins og áður segir, skuldbundinn til þess að framkvæma sérstök aðskilin rekstraruppgjör fyrir ýmsa samkeppnisstarfsemi sem tilgreind er í ákvörðuninni, þ. á m. akstursþjónustu Íslandspósts og vöruflutninga.

Megintilgangur með uppgjörunum er að auðvelda eftirlit og tryggja rétta framkvæmd, þ. á m. varpa ljósi á hvort um mögulega undirverðlagningu geti verið að ræða á einstökum sviðum.

Eins og áður greinir starfar sérstök eftirlitsnefnd á grundvelli ákvörðunar nr. 8/2017. Hægt er að beina kvörtunum til nefndarinnar telji keppinautar að verðlagning Íslandspósts feli í sér undirverðlagningu sem fari gegn samkeppnislögum eða ákvörðun nr. 8/2017. Jafnframt er aðilum frjálst að beina slíkum kvörtunum til Samkeppniseftirlitsins sem mun þá koma þeim í réttan farveg.

Other news

All news and published material

The Court of Appeal directs the district court to consider the illegal collusion between Samskip and Eimskip.

The Court of Appeal has overturned a district court's dismissal order and directed a district judge to hear the case of the Competition Authority against Samskip...
  • 15 June 2026
  • NewsIn focus

Icelanders pay 55 per cent more for food than EU residents.

A discussion paper published today by the Competition Authority states that the price of food in Iceland is among the highest in Europe. Thus, Icelanders pay a...
  • 10 June 2026
  • NewsIn focus

Merger notification regarding Lyfju's acquisition of Borgar Apótek withdrawn

Lyfja hf. has notified the Competition Authority that the company and the owner of XY-lyfja ehf., which operates Borgar Apótek, have reached an agreement to drop...
  • 5th June 2026
  • News
Páll Gunnar Pálsson, Director-General of the Competition Authority. Composite image/CAP

The Competition Authority monitors the Norwegians' review of the banking market

The Norwegian competition authority has launched a review of competition in the country's banking market. This is the first step towards a possible market investigation...
  • 28 May 2026
  • News

The Norwegian Competition Authority is reviewing the banking market

The Norwegian Competition Authority has launched a review of competition in the country's banking market, and this is the first step towards a possible market investigation...
  • 27 May 2026
  • News

Comments sought on the merger of TVG Zimsen / Eimskips and Cargo Express

The Competition Authority is reviewing the merger between TVG Zimsen, Eimskip and Cargo Express. Cargo Express primarily sells transport services by freight flight...
  • 26 May 2026
  • News

In light of the coverage of the „Competition Authority's rules“ and mass redundancies

In media coverage of the collective redundancies at Berjaya Hotels Iceland, in connection with a possible takeover of the operation of Berjaya hotels by Icelandair Hotels, it has been reported, among other things, that...
  • 22 May 2026
  • News

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution.

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution in its marketing and pricing offers at a sensitive time when a new entrant is testing the waters in the market...
  • 22 May 2026
  • News

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

The Competition Authority has concluded its review of Kaldalóns hf.'s acquisition of all properties owned by FÍ Fasteignafélags slhf. The Authority's conclusion is that the merger...
  • 11 May 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports and publications
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.