Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Samruni Nesfisks ehf. og Ný-fisks ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 6/2017
  • Dagsetning: 10/2/2017
  • Fyrirtæki:
    • Ný-Fiskur ehf.
    • Nesfiskur ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Sjávarútvegur og fiskvinnsla
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna Nesfisk ehf. og Ný-fisks ehf. Megintilgangur Nesfisks sala fiskafurða, fiskverkun og útgerð. Tilgangur Ný-fisks er fyrst og fremst fiskverkun og útflutningur. Dótturfélag Ný-fisks, Útgerðarfélag Sandgerðis ehf., er útgerðarfyrirtæki sem gerir út eitt fiskiskip.

    Um er að ræða láréttan samruna þar sem Nesfiskur kaupir allt hlutafé í Ný-fiski.  Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni á mörkuðum málsins og leiði ekki til myndunar eða styrkingar á markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir samruninn ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c samkeppnislaga nr. 44/2005.