Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

„Fákeppni leiðir til þess að samkeppni slævist“

29. June 2026
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins kom fram í hlaðvarpsþætti Gýmaldsins og ræddi þar um samkeppni á dagvörumarkaði. Samsett mynd/SKE

Gímaldið birti í liðinni viku hlaðvarpsþátt um hátt matvöruverð á Íslandi og samkeppni á dagvörumarkaði. Meðal viðmælenda var Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Umfjöllunin byggði meðal annars á nýlega birtu umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins um dagvörumarkaðinn, þar sem fram kemur að Íslendingar greiða að meðaltali 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar í nágrannalöndunum og Evrópusambandsins.

Í þættinum ræddi Páll Gunnar um þær aðstæður sem hafa áhrif á samkeppni á íslenskum dagvörumarkaði. Hann sagði að samkeppni ætti víða undir högg að sækja vegna ýmissa aðgangshindrana sem einkenna íslenskt hagkerfi.

„Við búum í litlu hagkerfi þar sem samkeppni á alltaf á brattann að sækja vegna þess að við erum með miklar aðgangshindranir við legu landsins, sérstakan gjaldmiðil, tollvernd sem stundum á sér einhver rök en stundum alls ekki og gríðarlega öfluga hagsmunavernd, sérstaklega stærri fyrirtækja, síður neytenda, sem gera aðstæður mjög erfiðar fyrir samkeppni.“

Páll Gunnar sagði að þegar samkeppni væri takmörkuð færðist hún gjarnan af verði yfir á aðra þætti.

„Fákeppni leiðir til þess að samkeppni slævist. Fyrirtæki búa ekki við nógu mikla hvata til þess að hagræða í rekstri. Í fákeppnisumhverfi gerist það stundum að fyrirtæki upplifa sig í samkeppni þegar það er verið að keppa í öðru heldur en verði. Það er verið að keppa í fleiri afgreiðslustöðvum, betri framsetningu, flottara húsnæði og svo framvegis.“

Páll Gunnar ræddi einnig um þróun á kjöt- og mjólkurmarkaði og sagði að reynslan sýndi mikilvægi þess að skapa samkeppnisskilyrði sem stuðluðu að lægra verði og sterkari rekstri til lengri tíma.

„Í kjölfarið af samráðsmáli hérna um síðustu aldamót ákváðu stjórnvöld, eftir tilmælum samkeppnisyfirvalda, að fella niður tolla, draga úr innflutningsvernd og breyta stuðningi við bændur. Þetta leiddi síðan af sér að sú grein styrktist í samkeppnisumhverfi þar sem innlend fyrirtæki þurftu bara að standa sig, og þau stóðu sig,“ sagði Páll Gunnar.

Um þróunina á kjöt- og mjólkurmarkaði sagði Páll Gunnar:

„Í kjötinu þá höfum við farið þveröfuga leið og í mjólkinni líka og það getur ekki til lengri tíma komið þessum greinum til góða, vegna þess að það sem gerist þá er að verð hækkar, bændur sitja við skarðan hlut.“

Auk Páls Gunnars komu fram í þættinum Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur Visku, Bjarki Steinn Benjamínsson, verkefnastjóri Verðlagseftirlits ASÍ, og Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna.

Lesa má umræðuskjal Samkeppniseftirlitsins, Íslendingar greiða 55% hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB, á vef eftirlitsins here og hlusta má hlaðvarpsþáttinn hér í spilaranum hér fyrir neðan.

 

Related content

Íslendingar greiða 55% hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Ný greining Samkeppniseftirlitsins sýnir að matvöruverð á Íslandi er 55% hærra en að meðaltali í aðildarríkjum Evrópusambandsins. Read more →

Umræðuskjal nr. 1/2026 – Dagvöruverð og samanburður við útlönd

Í umræðuskjalinu er þróun dagvöruverðs á Íslandi borin saman við önnur Evrópulönd og fjallað um stöðu samkeppni á markaðnum. Read more →

Samkeppnin eigi á brattann að sækja í litlu hagkerfi

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, ræðir stöðu samkeppni og háa matvöruverðlagningu á Íslandi í viðtali við RÚV. Read more →

Other news

All news and published material

Sameiginleg yfirlýsing ECN um samruna

European Competition Network, (ECN), sem er samstarfsvettvangur evrópskra samkeppnisyfirvalda og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur birt same...
  • 26. June 2026
  • News

Samrunamál í sumar, tafir og ný mál

Vegna sumarleyfa og mikilla anna við rekstur samrunamála sem nú eru til formlegrar meðferðar (þegar tilkynntir samrunar) er fyrirsjáanlegt að tafir ve...
  • 23. June 2026
  • News

The Court of Appeal directs the district court to consider the illegal collusion between Samskip and Eimskip.

The Court of Appeal has overturned a district court's dismissal order and directed a district judge to hear the case of the Competition Authority against Samskip...
  • 15 June 2026
  • NewsIn focus

Icelanders pay 55 per cent more for food than EU residents.

A discussion paper published today by the Competition Authority states that the price of food in Iceland is among the highest in Europe. Thus, Icelanders pay a...
  • 10 June 2026
  • NewsIn focus

Merger notification regarding Lyfju's acquisition of Borgar Apótek withdrawn

Lyfja hf. has notified the Competition Authority that the company and the owner of XY-lyfja ehf., which operates Borgar Apótek, have reached an agreement to drop...
  • 5th June 2026
  • News
Páll Gunnar Pálsson, Director-General of the Competition Authority. Composite image/CAP

The Competition Authority monitors the Norwegians' review of the banking market

The Norwegian competition authority has launched a review of competition in the country's banking market. This is the first step towards a possible market investigation...
  • 28 May 2026
  • News

The Norwegian Competition Authority is reviewing the banking market

The Norwegian Competition Authority has launched a review of competition in the country's banking market, and this is the first step towards a possible market investigation...
  • 27 May 2026
  • News

Comments sought on the merger of TVG Zimsen / Eimskips and Cargo Express

The Competition Authority is reviewing the merger between TVG Zimsen, Eimskip and Cargo Express. Cargo Express primarily sells transport services by freight flight...
  • 26 May 2026
  • News

In light of the coverage of the „Competition Authority's rules“ and mass redundancies

In media coverage of the collective redundancies at Berjaya Hotels Iceland, in connection with a possible takeover of the operation of Berjaya hotels by Icelandair Hotels, it has been reported, among other things, that...
  • 22 May 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports and publications
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...