Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

Samkeppniseftirlitið hefur rannsókn á viðskiptakjörum birgja til dagvöruverslana

6. July 2012
Snowcap Mountain
Verslað í stórmarkaðiSamkeppniseftirlitið hefur ákveðið að hefja rannsókn á viðskiptakjörum nokkurra birgja til matvöruverslana. Þar verður rannsakað hvort mikill verðmunur í viðskiptum einstakra birgja við mismunandi verslanir hindri samkeppni og fari gegn samkeppnislögum. Í skýrslu eftirlitsins um verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði sem kom út í janúar sl. var sýnt fram á mjög mikinn verðmun hjá einstökum birgjum eftir því hvaða verslanir eða verslanakeðjur áttu í hlut. Í skýrslunni voru leiddar að því lýkur að þessi mikli verðmunur hindraði samkeppni á dagvörumarkaði.

Leitað hefur verið skýringa á þessum mun hjá birgjum og er ljóst að þeim hefur hingað til ekki tekist að sýna fram á að verðmunurinn byggi á traustri greiningu á kostnaðarlegu hagræði sem réttlæti betri kjör. Þvert á móti hefur verið kallað eftir leiðbeiningu Samkeppniseftirlitsins um þessi efni. Af þeim sökum telur Samkeppniseftirlitið óhjákvæmilegt að hefja umrædda rannsókn og leggja mat á hvort viðskiptakjör tiltekinna birgja fari gegn ákvæðum samkeppnislaga.

Þann 26. janúar sl. gaf Samkeppniseftirlitið út skýrslu No. 1/2012, Verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði. Í skýrslunni var m.a. komist að þeirri niðurstöðu að talsverðar aðgangshindranir væru að dagvörumarkaðnum á Íslandi. Var talið að þessar hindranir ættu ekki síst rót sína að rekja til mismunandi kjara sem dagvöruverslanir nytu hjá birgjum. Þrjár verslanakeðjur, Hagar, Kaupás og Samkaup, voru taldar vera með um 90% markaðshlutdeild. Aðrar minni verslanir sem ekki eru hluti af þessum keðjum greiddu að meðaltali 15% hærra verð en Hagar sem er stærsta verslanakeðjan. Þessar minni verslanir hefðu því mjög lítið út úr vörusölu sinni ef þær ætluðu sér að jafna það verð sem lágvöruverðsverslanir stóru keðjanna eins og t.d. Bónus og Krónan bjóða á mörgum algengum dagvörum.

Samkeppniseftirlitið sendi skýrsluna til umsagnar til dagvöruverslana, birgja og ýmissa hagsmunasamtaka fyrirtækja og hafa eftirlitinu borist fjölmörg svör og athugasemdir. Meðal þess sem óskað var upplýsinga um frá fyrirtækjum voru atriði sem réttlætt gætu lægra verð eða betri viðskiptakjör til verslana sem keyptu mikið magn, s.s. ef um væri að ræða dreifingu til birgðahúsa sem þau reka.

Samkeppniseftirlitið hefur undanfarið farið yfir athugasemdir aðila og undirbúið og ákveðið næstu skref í aðgerðum eftirlitsins á dagvörumarkaði. Ljóst er að þær skýringar og athugasemdir sem borist hafa frá fyrirtækjum fela ekki í sér ítarlega greiningu á því kostnaðarhagræði sem dreifing til birgðahúsa felur í sér eða annarra atriða sem réttlæta betri viðskiptakjör til þeirra verslana sem kaupa mikið magn. Mikill munur á viðskiptakjörum gerir hins vegar eins og fyrr segir minni verslunum erfiðara að veita stærri verslanakeðjum verðsamkeppni og þá einkum lágvöruverðsverslunum stóru keðjanna en þær hafa aukið hlutdeild sína mikið á liðnum árum.

Samkeppniseftirlitið hefur því ákveðið að hefja rannsókn á viðskiptakjörum nokkurra birgja til dagvöruverslana. Er m.a. um að ræða birgja sem eru með sterka stöðu í endursölu á dagvörum á þeim sviðum sem þeir starfa á. Mun rannsóknin beinast að því hvort viðskiptakjör þessara aðila til endurseljenda kunni að fara gegn þeim ákvæðum samkeppnislaga sem banna samninga sem hafa skaðleg áhrif á samkeppni og misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Einnig kemur til álita beiting nýs ákvæðis í samkeppnislögum sem felur í sér að Samkeppniseftirlitið getur gripið til aðgerða gegn aðstæðum og háttsemi sem kemur í veg fyrir, takmarkar eða hefur skaðleg áhrif á samkeppni almenningi til tjóns.

Samkeppniseftirlitið bendir á að uppfærð skýrsla No. 1/2012 um verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði er nú aðgengileg á heimasíðu eftirlitsins þar sem tekið hefur verið tillit til nokkurra ábendinga umsagnaraðila.

Other news

All news and articles

In light of the coverage of the „Competition Authority's rules“ and mass redundancies

  • 22 May 2026
  • News

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution.

  • 22 May 2026
  • News

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

  • 11 May 2026
  • News

Monitoring necessary in a monopolistic market

  • 4th May 2026
  • NewsIn focus

The Competition Authority tasked with monitoring fuel pricing

  • 30 April 2026
  • NewsIn focus

„It is of enormous benefit to Icelandic society that there is competition in the financial market.“

  • 27 April 2026
  • NewsIn focus

Summer job for economics students at SKE

  • 22 April 2026
  • News
Composite image/SKE

Merger of Hekla and Bílson – consultation process

  • 20 April 2026
  • News
The Competition Authority has concluded that the merger of Ferro Zink ehf. and Metal ehf. hinders effective competition and must therefore be annulled.

The Competition Authority annuls the merger of Ferro Zink and Metal

  • 17 April 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Articles
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.