
Samkeppniseftirlitið hefur sent öllum sveitarfélögum á Íslandi bréf, dags. 29. nóvember sl., þar sem minnt er á hversu brýnt það er að þau kappkosti að draga úr opinberum samkeppnishömlum og hvetji fremur til samkeppni. Með því sé unnt að bæta hag fyrirtækja og íbúa og um leið skjóta styrkari stoðum undir atvinnulíf á viðkomandi svæði. Almennt sé viðurkennt að í eflingu samkeppni felist rétt viðbrögð við efnahagskreppu.
Í bréfinu er minnt á nokkur álit sem beint hefur verið til sveitarfélaga á síðustu árum þar sem fjallað er um álitaefni þessu tengd.
Tildrög bréfsins eru þau að fyrir skemmstu birti Samkeppniseftirlitið fyrst talda álitið, No. 1/2012. Álitið var kynnt ráðuneytum og tíu stærstu sveitarfélögum landsins með bréfum, dags. 25. september sl. Jafnframt óskaði Samkeppniseftirlitið eftir því við Samband íslenskra sveitarfélaga að það kæmi álitinu á framfæri við öll sveitarfélög sem aðild eiga að sambandinu. Þar sem það hefur ekki verið gert ákvað Samkeppniseftirlitið að senda umrætt bréf til allra sveitarfélaga.
Bréfið má nálgast here.
"*" indicates required fields