Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

Samkeppniseftirlitið leggur 45 milljón kr. sekt á SORPU bs. fyrir brot á samkeppnislögum

21 December 2012
Snowcap Mountain
Merki SORPUSamkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu í ákvörðun nr. 34/2012 sem birt er í dag að SORPA bs. (sem er byggðasamlag sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu) hafi brotið gegn samkeppnislögum með því að misnota markaðsráðandi stöðu sína á markaði fyrir flokkun og meðhöndlun úrgangs. Þetta gerði SORPA með því að veita eigendum sínum, þ.e. sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, hærri afslætti en öðrum viðskiptavinum, s.s. sorphirðufyrirtækjum, jafnvel þó fyrirtækin kæmu með meira magn af sorpi en sveitarfélögin í móttökustöð SORPU í Gufunesi. Er það mat Samkeppniseftirlitsins að þessir mismunandi afslættir SORPU hafi haft skaðleg áhrif á samkeppni sem birtust m.a. í útboði Hafnarfjarðarbæjar á sorphirðu árið 2009 og einnig í samningi sem SORPA gerði við Sorpstöð Suðurlands. Í þeim samningi veitti SORPA sorpstöðinni talsvert hærri afslætti en einkareknum sorphirðufyrirtækjum og öðrum viðskiptavinum býðst samkvæmt almennri gjaldskrá. Umræddir afslættir SORPU taka því ekki mið af því kostnaðarhagræði sem felst í auknum viðskiptum sem áskilið er þegar um viðskipti markaðsráðandi fyrirtækja er að ræða. 
 
Í málinu hefur SORPA réttlætt aukna afslætti til sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu á þeim grundvelli að um væri að ræða arðgreiðslur til eigenda. Því til stuðnings hefur SORPA vísað m.a. til ákvæða laga sem SORPA starfar eftir, annars vegar laga um meðhöndlun úrgangs og hins vegar sveitastjórnarlaga. Samkeppniseftirlitið fellst ekki á rök SORPU enda ekkert í þessum lögum sem heimilar SORPU arðgreiðslur í því formi sem um ræðir. Að mati eftirlitsins er SORPA fyrirtæki sem stundar atvinnurekstur í skilningi samkeppnislaga og er í samkeppni á mörgum sviðum við einkafyrirtæki eins og t.d. sorphirðufyrirtæki. Af þessu leiðir að SORPA verður að gæta að því að háttsemi byggðarsamlagsins hafi ekki skaðleg áhrif á þeim sviðum sem það starfar í samkeppni við önnur fyrirtæki.
 
Með hliðsjón af eðli og umfangi brots SORPU telur Samkeppniseftirlitið að sekt að fjárhæð 45 milljónir kr. sé hæfileg. Undir meðferð málsins hefur SORPA ekki gripið til neinna aðgerða til að jafna kjör viðskiptavina til að leiðrétta þann mismun sem er á afsláttarkjörum viðskiptavina og fjallað er nánar um í ákvörðuninni. Með heimild í samkeppnislögum beinir Samkeppniseftirlitið því m.a. þeim fyrirmælum til SORPU að endurskoða gjaldskrá fyrir þjónustu sína. Skulu viðskiptakjör í nýrri gjaldskrá vera almenn, gagnsæ og hlutlæg þannig að aðilar sem eiga í samskonar viðskiptum við SORPU njóti sömu kjara.
 
Í nóvember árið 2010 gáfu samkeppniseftirlitin á Norðurlöndunum út skýrsluna Competition Policy and Green Growth. Í skýrslunni var lögð áhersla á að virk samkeppni gæti stuðlað að því að umhverfisstefna skilaði betri árangri á mörkuðum. Þannig myndi virk samkeppni auka líkurnar á að umhverfisstefna skilaði tilætluðum árangri um leið og hagur neytenda af virkri samkeppni væri tryggður. Að mati Samkeppniseftirlitsins má draga þá ályktun af aðgerðum SORPU í máli þessu að byggðasamlagið hafi ekki starfað í samræmi við þetta.

Other news

All news and articles

In light of the coverage of the „Competition Authority's rules“ and mass redundancies

  • 22 May 2026
  • News

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution.

  • 22 May 2026
  • News

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

  • 11 May 2026
  • News

Monitoring necessary in a monopolistic market

  • 4th May 2026
  • NewsIn focus

The Competition Authority tasked with monitoring fuel pricing

  • 30 April 2026
  • NewsIn focus

„It is of enormous benefit to Icelandic society that there is competition in the financial market.“

  • 27 April 2026
  • NewsIn focus

Summer job for economics students at SKE

  • 22 April 2026
  • News
Composite image/SKE

Merger of Hekla and Bílson – consultation process

  • 20 April 2026
  • News
The Competition Authority has concluded that the merger of Ferro Zink ehf. and Metal ehf. hinders effective competition and must therefore be annulled.

The Competition Authority annuls the merger of Ferro Zink and Metal

  • 17 April 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Articles
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.