Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

The Competition Authority has launched a market investigation into the fuel market.

3 April 2018
Snowcap Mountain

Bensíni dælt á bílSamkeppniseftirlitið hefur ákveðið að hefja markaðsrannsókn á íslenska eldsneytismarkaðnum. Markaðsrannsókn er nýtt form rannsóknar, sem felur í sér athugun á því hvort grípa þurfi til aðgerða gegn aðstæðum eða háttsemi sem koma í veg fyrir, takmarka eða hafa skaðleg áhrif á samkeppni almenningi til tjóns. Byggir rannsóknin á c-lið 1. mgr. 16. gr. samkeppnislaga, en ákvæðið heimilar Samkeppniseftirlitinu að grípa til ýmis konar aðgerða til að ryðja úr vegi samkeppnishindrunum, þótt þær stafi ekki af brotum á samkeppnislögum. Rannsókn af þessu tagi er m.a. hagfræðileg greining á samkeppni á tilteknum markaði, eða hlutum hans, og er því gott tæki til að fá heildaryfirsýn yfir samkeppnislegar aðstæður á markaði. Um framkvæmd markaðsrannsókna Samkeppniseftirlitsins vísast til reglna um markaðsrannsóknir Samkeppniseftirlitsins nr. 490/2013 and umræðuskjals um markaðsrannsóknir Samkeppniseftirlitsins nr. 2/2012.

Ákvörðun um markaðsrannsókn á eldsneytismarkaði er byggð á gögnum og upplýsingum sem aflað hefur verið í tengslum við fyrri athuganir, erindi og ábendingar. Þá átti Samkeppniseftirlitið fundi með aðilum á markaðnum síðasta haust í því skyni að afla nýjustu upplýsinga um samkeppnisaðstæður.

Eldsneytisverð er hátt á Íslandi

Samkeppniseftirlitið áætlar að íslensk heimili hafi keypt bensín og díselolíu fyrir um 42 milljarða króna á árinu 2011. Ef bensín- og díselverð, án skatta og annarra opinberra gjalda, á árunum 2005-2011 er miðað við vegið meðalverð í aðildarríkjum Evrópusambandsins kemur í ljós að verð á bensíni á Íslandi var um 20% hærra og verð díselolíu um 15% hærra. Verð bensíns og díselolíu er að jafnaði með því hæsta sem þekkist í samanburði við aðildarríki Evrópusambandsins. Smæð og landfræðileg einangrun kann að sjálfsögðu að hafa áhrif á eldsneytisverð hér á landi. Þeim mun mikilvægara er að samkeppni sé ekki raskað vegna samkeppnishamlandi aðstæðna á markaðnum eða háttsemi þeirra fyrirtækja sem starfa á honum, auk þess sem mikilvægt er að framleiðsluþættir viðkomandi markaðar séu nýttir á sem hagkvæmastan hátt.

Samkeppnishamlandi aðstæður eða háttsemi

Í tengslum við rannsóknina hefur Samkeppniseftirlitið gefið út rannsóknaráætlun sem felur í sér áform um tilhögun og afmörkun rannsóknarinnar. Kann hún að breytast eftir því sem rannsókninni vindur fram. Þær aðstæður eða háttsemi sem Samkeppniseftirlitið telur að geti komið veg fyrir, takmarkað eða haft skaðlegt áhrif á samkeppni á íslenska eldsneytismarkaðnum og rannsaka þurfi frekar eru m.a. eftirfarandi atriði:

  • Sú aðgangs- og vaxtarhindrun sem getur falist í þeim mikla kostnaði sem fylgir því að reisa birgðastöð. Þessi staðreynd getur valdið því að innkoma nýrra aðila inn á afmarkaða landfræðilega markaði getur verið erfið.
  • Sú aðgangs- og vaxtarhindrun sem getur falist í því að félögin sem eiga olíubirgðastöðvar á Íslandi, beint eða óbeint; Atlantsolía, N1, Olís og Skeljungur, eru lóðrétt samþætt fyrirtæki er reka einnig bensínstöðvar (á smásölustigi) og geta þ.a.l. haft lítinn hvata til þess að selja eldsneyti í heildsölu til nýrra aðila á markaðnum sem stefna að því að keppa við þau á smásölustiginu.
  • Stefna Reykjavíkurborgar og e.t.v. annarra sveitarfélaga að ekki verði reistar nýjar bensínstöðvar nema samsvarandi fjöldi verði lagður niður í staðinn, án þess að tryggt sé að lóðir sem úthlutað hefur verið og byggingar geti skipt um hendur og þannig auðveldað nýjum aðilum að hefja starfsemi og smærri aðilum að stækka. Skipulagshindranir af þessu tagi geta valdið því að nýir aðilar komist hvorki inn á markaðinn né að þeir aðilar sem þar eru fyrir geti aukið hlut sinn með því að fjölga sölustöðum.
  • Samstarf, eignarhald og stjórnunartengsl þeirra fyrirtækja sem starfa á eldsneytismarkaðnum. Rannsaka þarf að hvaða leyti núverandi samstarf milli þeirra fyrirtækja sem starfa á markaðnum, s.s. í gegnum birgðahald og dreifingu,  getur verið samkeppnishamlandi auk þess sem vega þarf og meta hvort hagkvæmnissjónarmið geti réttlætt samstarfið miðað við núverandi markaðsaðstæður.
  • Hvort verðbreytingar á smásöluverði eldsneytis í kjölfar breytinga á innkaupsverði séu ósamhverfar, þ.e. að smásöluverð breytist ekki jafn mikið í kjölfar hækkunar og lækkunar á innkaupsverði.
  • Hlutverk og starfshættir Flutningsjöfnunarsjóðs á markaðnum, sbr. lög nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara. Kanna þarf áhrif sjóðsins á samkeppni, þ.á m. miðlun hans á upplýsingum til keppinauta á markaði.
  • Hvort smásölumarkaðurinn fyrir eldsneyti á Íslandi beri einkenni þess að þegjandi samhæfing (e. tacit coordination/collusion) þeirra fyrirtækja er starfa á markaðnum geti verið til staðar. Í þessu sambandi er litið til fákeppnisaðstæðna og einsleitni vöru, mikils verðgagnsæis sem auðveldi keppinautum mat á áhrifum samkeppni og fleiri atriða.

Ráðgjafahópur skipaður

Í samræmi við 5. gr. reglna um markaðsrannsóknir Samkeppniseftirlitsins hefur stjórn Samkeppniseftirlitsins skipað ráðgjafahóp en hlutverk hans er að veita faglega ráðgjöf og aðstoð vegna rannsóknarinnar. Ráðgjafahópinn skipa:

  • Daði Már Kristófersson, dósent við Hagfræðideild Háskóla Íslands.
  • Þorkell Helgason, stærðfræðingur og fyrrverandi Orkumálastjóri.

Áætluð birting frummatsskýrslu um mitt ár 2014

Á  fyrri hluta árs 2014 gerir Samkeppniseftirlitið ráð fyrir því að upplýsingaöflun og mati eftirlitsins á gögnum verði lokið og birt verði svokölluð frummatsskýrsla um mitt sama ár. Í henni verður m.a. tekin afstaða til þess hvort Samkeppniseftirlitið telji að taka þurfi íþyngjandi ákvörðun í kjölfar markaðsrannsóknarinnar.

Other news

All news and articles

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

  • 11 May 2026
  • News

Monitoring necessary in a monopolistic market

  • 4th May 2026
  • NewsIn focus

The Competition Authority tasked with monitoring fuel pricing

  • 30 April 2026
  • NewsIn focus

„It is of enormous benefit to Icelandic society that there is competition in the financial market.“

  • 27 April 2026
  • NewsIn focus

Summer job for economics students at SKE

  • 22 April 2026
  • News
Composite image/SKE

Merger of Hekla and Bílson – consultation process

  • 20 April 2026
  • News
The Competition Authority has concluded that the merger of Ferro Zink ehf. and Metal ehf. hinders effective competition and must therefore be annulled.

The Competition Authority annuls the merger of Ferro Zink and Metal

  • 17 April 2026
  • News

The Competition Authority submits an opinion on the bill to reduce the value added tax on fuel.

  • 16 April 2026
  • News

Competitive assessment is a key factor in enhancing competitiveness.

  • 10 April 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Articles
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.