Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

The Competition Authority has issued recommendations to the Harpa Conference and Concert Hall to level the playing field for companies that do business with the concert hall.

7th July 2022

The Competition Authority
hefur í dag beint áliti til Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss ohf. (hér eftir Harpa).
Þar eru sett fram tiltekin tilmæli til fyrirtækisins sem ætlað er að jafna
stöðu fyrirtækja sem eiga viðskipti við tónlistarhúsið og tónleikahaldara sem
bjóða upp á hljóð- og lýsingarbúnað og ýmsa tengda þjónustu.

Harpa er
opinbert hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar og íslenska ríkisins. Eitt af
hlutverkum Samkeppniseftirlitsins er að gæta þess að aðgerðir opinberra aðila,
þar á meðal opinberra fyrirtækja í samkeppnisrekstri, takmarki ekki samkeppni
og benda á leiðir til þess að gera hana virkari og auðvelda aðgang nýrra aðila
að markaði.

Harpa er öflugur aðstöðuveitandi fyrir fjölbreytt
viðburða- og tónleikahald innandyra, með stærsta sal hússins, Eldborg, í
forgrunni. Þessi aðstaða á sér ekki hliðstæðu hér á landi. Samkeppniseftirlitið
telur sterkar líkur á því að Harpa, sé markaðsráðandi hér á landi sem
aðstöðuveitandi á þessu sviði.

Þessi staða,
ásamt með eignarhaldi opinberra aðila, leggur Hörpu ríkar skyldur á herðar að raska
ekki samkeppni á tengdum samkeppnismörkuðum þar sem önnur minni fyrirtæki keppa
meðal annars við að bjóða tónleikahöldurum upp á hljóð- og lýsingarbúnað og
ýmsa tengda þjónustu. Mikilvægt er að félagið meti stöðu sína reglulega og
starfi innan þeirra marka sem samkeppnislög setja markaðsráðandi fyrirtækjum og
félögum í opinberum rekstri.

The Competition Authority
hefur á undanförnum árum leitað upplýsinga og sjónarmiða vegna starfsemi Hörpu
vegna kvartana og ábendinga sem eftirlitinu hafa borist. Samkeppniseftirlitið hefur
hingað til ekki talið forsendur til þess að að grípa til íhlutunar gagnvart
Hörpu, en vill með áliti þessu draga saman ályktanir af þeim athugunum sem
gerðar hafa verið.

The Competition Authority
barst fyrst kvörtun vegna starfsemi Hörpu árið 2013 og síðan þá hafa fleiri
kvartanir borist. Árin 2015 og 2017 beindi Samkeppniseftirlitið tilmælum til
Hörpu um að endurskoða viðskiptaskilmála sína þannig að sanngjörnum og
málefnalegum kröfum um gæði og öryggi yrði mætt án þess að samkeppni væri
raskað. Leiddu tilmælin til þess að Harpa breytti skilmálum sínum, en þrátt
fyrir það bárust Samkeppniseftirlitinu frekari ábendingar og kvartanir vegna starfsemi
Hörpu.

Eins og
kunnugt er lá viðburðahald á Íslandi að mestu leyti niðri um langa hríð vegna
Covid-19. Nú, þegar viðburðahald er komið aftur á fullan skrið, telur
Samkeppniseftirlitið tímabært að draga lærdóm af fyrri athugunum og setja fram álit
þetta. Með álitinu eru sett fram tilmæli sem eru til þess fallin að efla
samkeppni á mörkuðum þar sem viðskiptavinir til að mynda á sviði útleigu á
hljóð- og lýsingarbúnaði starfa og einnig eftir atvikum á öðrum mörkuðum.

Tilmælin
eru eftirfarandi:


a)
Að Harpa yfirfari verklag við undirbúning
samninga, samningagerð um kaup á búnaði og þjónustu og birti á heimasíðu sinni
verklagsreglur um hvernig fyrirtækið beiti útboðum og verðkönnunum í starfsemi
sinni. Við stærri innkaup og samningagerð verði samkeppnisleg áhrif metin með
hliðsjón af leiðbeiningum Samkeppniseftirlitsins um samkeppnismat stjórnvalda,
sbr. álit eftirlitsins nr. 2/2009. Tryggt verði með þessu að Harpa geri ekki samninga
við viðskiptavini sem fela í sér ómálefnalega útilokun eða takmörkun á
viðskiptum við aðra aðila.

Skýring: Athuganir
á kvörtunum og ábendingum gefa til kynna að Harpa hafi átt meiri hluta
viðskipta vegna kaupa á hljóðkerfum og ljósakerfum við eitt fyrirtæki.
Meginskýring þess er að viðkomandi fyrirtæki varð hlutskarpast í útboði á árinu
2009. Harpa hefur hins vegar ekki sýnt fram á með fullnægjandi hætti að það
hafi í starfsemi sinni greitt fyrir viðskiptum við önnur fyrirtæki sem starfa á
markaðnum og með því skapað samkeppnislegt aðhald sér til hagsbóta og til
hagsbóta fyrir mögulega viðsemjendur.


b) Að Harpa endurskoði
verklag og reglur sem heimila viðskiptavinum að leigja og nýta tækjabúnað frá
öðrum aðilum en Hörpu. Miði endurskoðunin að því að draga úr mögulegum
hindrunum á þessu sviði. Meðal annars er mælst til þess að fallið verði frá því
að gera það að skilyrði að Harpa leigi búnaðinn og endurleigi síðan til
viðskiptavina. Einnig verði tryggt að gjaldtaka Hörpu í tengslum við
uppsetningu utanaðkomandi búnaðar verði ekki hærri en sannanlega nemur þeim
kostnaði sem af verkinu hlýst fyrir Hörpu. Þá verði verklag endurskoðað með það
að markmiði að draga úr kostnaði.

Skýring: Kvartað
hefur verið yfir því að Harpa hafi unnið gegn því að flytjendur tónlistar og
tónleikahaldarar geti komið með eigin og/eða utanaðkomandi hljóðkerfi eða búnað
til nota í tónleikahúsinu. Harpa brást að hluta til við þessum kvörtunum með
því að rýmka heimildir til þessa. Áfram hefur þó verið kvartað yfir miklum
kostnaði og öðrum mögulegum hindrunum. Til dæmis er áskilið að búnaður sé
leigður í gegnum Hörpu og endurleigður til viðkomandi viðskiptavina. Hefur
Harpa haldið því fram að þetta sé nauðsynlegt vegna virðisaukakvaðar sem hvíli
á félaginu. Einnig er áskilnaður um að viðskiptavinir kosti vinnu tæknimanna
Hörpu, sem að mati kvartenda geti leitt til tvöfalds kostnaðar. Tilmælunum er ætlað
að vinna gegn þessu.


Álitið í heild má nálgast hér. 

Other news

All news and published material

Icelanders pay 55 per cent more for food than EU residents.

A discussion paper published today by the Competition Authority states that the price of food in Iceland is among the highest in Europe. Thus, Icelanders pay a...
  • 10 June 2026
  • NewsIn focus

Merger notification regarding Lyfju's acquisition of Borgar Apótek withdrawn

Lyfja hf. has notified the Competition Authority that the company and the owner of XY-lyfja ehf., which operates Borgar Apótek, have reached an agreement to drop...
  • 5th June 2026
  • News
Páll Gunnar Pálsson, Director-General of the Competition Authority. Composite image/CAP

The Competition Authority monitors the Norwegians' review of the banking market

The Norwegian competition authority has launched a review of competition in the country's banking market. This is the first step towards a possible market investigation...
  • 28 May 2026
  • News

The Norwegian Competition Authority is reviewing the banking market

The Norwegian Competition Authority has launched a review of competition in the country's banking market, and this is the first step towards a possible market investigation...
  • 27 May 2026
  • News

Comments sought on the merger of TVG Zimsen / Eimskips and Cargo Express

The Competition Authority is reviewing the merger between TVG Zimsen, Eimskip and Cargo Express. Cargo Express primarily sells transport services by freight flight...
  • 26 May 2026
  • News

In light of the coverage of the „Competition Authority's rules“ and mass redundancies

In media coverage of the collective redundancies at Berjaya Hotels Iceland, in connection with a possible takeover of the operation of Berjaya hotels by Icelandair Hotels, it has been reported, among other things, that...
  • 22 May 2026
  • News

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution.

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution in its marketing and pricing offers at a sensitive time when a new entrant is testing the waters in the market...
  • 22 May 2026
  • News

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

The Competition Authority has concluded its review of Kaldalóns hf.'s acquisition of all properties owned by FÍ Fasteignafélags slhf. The Authority's conclusion is that the merger...
  • 11 May 2026
  • News
SKE fuel market

Monitoring necessary in a monopolistic market

Páll Gunnar Pálsson, CEO of the Competition Authority, said in RÚV television news that the extent of monitoring whether a reduction in fuel prices results in savings...
  • 4th May 2026
  • NewsIn focus
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports and publications
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.