
Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn á bankageiranum, en slíkar rannsóknir geta leitt til aðgerða ef aðstæður á markaði eru taldar draga úr virkri samkeppni.
Í frétt norska eftirlitsins kemur fram að virk samkeppni geti m.a. leitt til lægri vaxta á íbúðalánum, hærri innlánsvaxta og lægri þjónustugjalda. Þá hafi fyrri athuganir meðal annars bent til lítils hreyfanleika viðskiptavina, hindrana fyrir nýja keppinauta og markaðsaðstæðna sem geti auðveldað samhæfingu vaxtastigs milli banka.
Páll Gunnar Pálsson, forstóri Samkeppniseftirlitsins, segir að stofnunin muni kynna sér norsku markaðsrannsóknina þegar niðurstöður hennar liggja fyrir.
„Við munum kynna okkur þessa úttekt norska samkeppniseftirlitsins og þær niðurstöður sem af henni kunna að leiða. Samkeppniseftirlitið hefur í fyrri málum tekið á ýmsum atriðum sem nú eru á dagskrá í Noregi, eins og t.d. að liðka fyrir hreyfanleika viðskiptavina milli þjónustuveitenda með því að stuðla að lægri skiptikostnaði. Það hefur Samkeppniseftirlitið gert bæði með gerð sátta við bankana og tilmælum til stjórnvalda.
Benda má á að þrátt fyrir að hlutfall rekstrarkostnaðar af tekjum íslenskra banka hafi lækkað verulega á síðustu árum og standist nú fyllilega samanburð við stærri norræna banka, þá hefur heildarvaxtamunur íslensku bankanna ekki minnkað samhliða á sama tíma. Bankamarkaðir á Norðurlöndum eiga margt sameiginlegt og athugun norskra samkeppnisyfirvalda gæti því haft ákveðið gildi við mat á samkeppnisaðstæðum hér á landi, svo sem hvað varðar greiningu á áhrifum aukinnar tæknivæðingar í bankaþjónustu á rekstrarkostnað og vaxtamun og einnig hvað varðar aðstæður sem auðveldað geta samhæfingu vaxtastigs milli banka, “ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Heimild til markaðsrannsókna mikilvægt tæki
Þá bendir Páll Gunnar jafnframt á að Samkeppniseftirlitið á Íslandi hafi sambærilegar heimildir til að framkvæma markaðsrannsóknir samkvæmt competition law and rules No. 490/2013 um markaðsrannsóknir Samkeppniseftirlitsins.
„Heimildir til markaðsrannsókna eru mikilvægt tæki til að bregðast við samkeppnisvandamálum sem geta stafað af uppbyggingu markaða, hegðun fyrirtækja eða öðrum aðstæðum sem draga úr virkni samkeppni. Slíkar rannsóknir geta meðal annars beinst að samþjöppun á mörkuðum, aðgangshindrunum eða öðrum þáttum sem hafa áhrif á samkeppnislegt aðhald, jafnvel þótt ekki liggi fyrir brot á samkeppnislögum. Þessum heimildum hafa hins vegar ekki fylgt fullnægjandi fjárheimildir og því hafa þær ekki nýst eins og æskilegt hefði verið“ segir Páll Gunnar.
Norska samkeppniseftirlitið mun nú afla upplýsinga frá bönkum og öðrum markaðsaðilum og verður 14 bönkum gert að afhenda nauðsynleg gögn vegna úttektarinnar.
"*" indicates required fields