Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

Competition Authority fines Síminn for breaching agreements

28 May 2020
Snowcap Mountain

Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í dag er komist að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi brotið gegn skilyrðum í sáttum sem fyrirtækið hefur á undanförnum árum gert við eftirlitið. Í ákvörðuninni kemur fram að mikill verðmunur og ólík viðskiptakjör við sölu á Enska boltanum á Símanum Sport (línulegt áskriftarsjónvarp), eftir því hvort hann er boðinn innan Heimilispakka Símans eða einn og sér í stakri áskrift, hafi brotið gegn þeim skilyrðum sem hvíla á fyrirtækinu. Telur Samkeppniseftirlitið að brotin séu alvarleg og sektar Símann vegna þessa um 500 milljónir króna.

Skilyrðunum sem Síminn braut er ætlað að vinna gegn því að Síminn geti, í ljósi sterkrar stöðu sinnar á mikilvægum mörkuðum fjarskipta, nýtt hið breiða þjónustuframboð sitt til þess að draga að sér og halda viðskiptum á þann hátt að keppinautar þeirra geti ekki boðið samkeppnishæft verð eða þjónustu. Er skilyrðunum ætlað að koma í veg fyrir að Síminn geti með þessum hætti takmarkað samkeppni almenningi til tjóns.

Þau skilyrði sem Síminn hefur brotið gegn eru eftirfarandi:

  • Skilyrði 19. og 20. gr. í sátt frá 23. janúar 2015 sem gerir Símanum skylt að aðgreina ólíka þjónustuþætti m.a. þannig að þeir séu nægilega aðgreindir og óháðir hverjir öðrum í verði og öðrum skilmálum. Sú sátt er að stofni til frá árinu 2013 og var gerð vegna sjö rannsókna sem þá voru yfirstandandi, sem og vegna ítrekaðra brota Símans sem Samkeppniseftirlitið hafði staðreynt á árunum þar á undan. Nánari umfjöllun um þetta er að finna here.
  • Skilyrði 3. gr. í sátt frá 15. apríl 2015 sem bannar Símanum að selja fjarskiptaþjónustu og línulegt áskriftarsjónvarp tvinnað saman eða á kjörum sem jafngilda slíkri hegðun. Þetta ákvæði er að stofni til úr sátt frá árinu 2005. Þá skuldbatt Síminn sig til að grípa ekki til tiltekinna aðgerða þegar fyrirtækið tók yfir Íslenska sjónvarpsfélagið (Skjáinn). Sáttin frá 2005 var endurskoðuð árið 2015 en fyrirmælin í 3. gr. héldu sér, sbr. nánar here. Á árinu 2012 staðfesti Hæstiréttur þá niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins að Síminn hefði brotið sömu fyrirmæli í sáttinni frá 2005 og staðreynt er í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í dag.

Framangreindar sáttir voru gerðar á grundvelli samkeppnislaga sem heimila Samkeppniseftirlitinu að ljúka rannsókn mála ef fyrirtæki undirritar sátt og skuldbindur sig til frambúðar annaðhvort að framkvæma eitthvað eða grípa ekki til tiltekinna aðgerða í því skyni að verja eða efla samkeppni. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur slegið því föstu að það sé „Very urgent“ að fyrirtæki virði slík loforð.

Kvörtun Sýnar

Til málsins stofnaðist með kvörtun frá Sýn hf. vorið 2019. Í kvörtuninni var því haldið fram að kynning, verðlagning og skilmálar á fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu Símans, einkum Enska boltanum, hafi falið í sér mjög alvarlegar samkeppnishömlur.

Samkeppniseftirlitið birti Símanum frummat sitt á háttsemi fyrirtækisins sumarið 2019. Af frummati þessu mátti Símanum vera ljóst að óbreytt stefna fyrirtækisins kynni m.a. að brjóta í bága við skilyrði sem á því hvíldu. Í framhaldinu hóf Síminn að bjóða keppinautum sínum heildsölusamninga um sölu á Enska boltanum, en greip að öðru leyti ekki til ráðstafana sem gerðu eftirlitinu kleift að fella rannsókn sína niður.

Samkeppniseftirlitið hefur síðan birt Símanum andmælaskjöl þar sem gerð hefur verið grein fyrir frummati Samkeppniseftirlitsins og aðilar málsins brugðist við þeim, sem og öðrum gögnum málsins.

Nánar um brotin

Það er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að Síminn hafi brotið fyrrgreinda 3. gr. í sátt frá 15. apríl 2015 með því að bjóða Heimilispakkann (með margvíslegri fjarskiptaþjónustu) og Símann Sport/Enska boltann (línulegt áskriftarsjónvarp) með miklum verðmun og ólíkum viðskiptakjörum, eftir því hvort umrædd þjónusta og þá sérstaklega Enski boltinn var seld saman eða sitt í hvoru lagi. Þannig var verð fyrir Símann Sport/Enska boltann aðeins 1.000 kr. á mánuði þegar þjónustan var seld sem hluti af Heimilispakkanum og Sjónvarpi Símans Premium, en 4.500 kr. þegar hún var seld án þess að önnur þjónusta væri keypt samhliða.

Það er jafnframt niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að Síminn hafi með háttsemi sinni brotið 19. og 20. gr. í sátt frá 23. janúar 2015, sbr. ákvörðun nr. 6/2015, sem m.a. kveða á um aðgreiningu þjónustuþátta og möguleika viðskiptavina til að kaupa hluta viðkomandi þjónustu af öðrum án þess að það hafi áhrif á kjör annarrar þjónustu sem keypt er af Símanum.

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós að þorri viðskiptavina Símans, þ.e. nærri því 99% þeirra sem kaupa Enska boltann/Símann Sport á kerfum fyrirtækisins, keyptu sjónvarpsefnið í heildarþjónustu, þ.e. með Heimilispakkanum og/eða Sjónvarpi Símans Premium í stað þess að kaupa þjónustuna eina og sér.

Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins er að verðlagning Símans á Enska boltanum sem hluta af Heimilispakkanum hafi lagt stein í götu keppinauta fyrirtækisins og takmarkað möguleika þeirra til að laða til sín viðskiptavini.

Framangreind brot eru til þess fallin að styrkja stöðu Símans á sjónvarpsmarkaði og efla enn frekar stöðu fyrirtækisins á fjarskiptamörkuðum þar sem staða Símans er sterk fyrir.

Samkeppniseftirlitið telur að framangreind brot séu alvarleg og til þess fallin að skaða hagsmuni almennings til lengri tíma, á mörkuðum sem skipta neytendur og efnahagslífið miklu máli. Því sé óhjákvæmilegt að leggja sektir á Símann vegna brotanna. Er það áhyggjuefni að Síminn hafi á ný gerst brotlegur með alvarlegum hætti.

Fyrir Samkeppniseftirlitinu liggur að taka afstöðu til fleiri kvartana sem borist hafa á liðnum mánuðum vegna háttsemi á fjarskiptamarkaði. Samkeppniseftirlitið mun í framhaldinu taka til skoðunar hvort efni séu til þess að gera breytingar á þeim skilyrðum sem nú hvíla á Símanum og tryggja eiga virka samkeppni. Hefur Síminn jafnframt óskað eftir samræðum um endurskoðun skilyrðanna.

Frekari upplýsingar má sjá í upplýsingaskjalinu hér .

Other news

All news and published material

The Court of Appeal directs the district court to consider the illegal collusion between Samskip and Eimskip.

The Court of Appeal has overturned a district court's dismissal order and directed a district judge to hear the case of the Competition Authority against Samskip...
  • 15 June 2026
  • NewsIn focus

Icelanders pay 55 per cent more for food than EU residents.

A discussion paper published today by the Competition Authority states that the price of food in Iceland is among the highest in Europe. Thus, Icelanders pay a...
  • 10 June 2026
  • NewsIn focus

Merger notification regarding Lyfju's acquisition of Borgar Apótek withdrawn

Lyfja hf. has notified the Competition Authority that the company and the owner of XY-lyfja ehf., which operates Borgar Apótek, have reached an agreement to drop...
  • 5th June 2026
  • News
Páll Gunnar Pálsson, Director-General of the Competition Authority. Composite image/CAP

The Competition Authority monitors the Norwegians' review of the banking market

The Norwegian competition authority has launched a review of competition in the country's banking market. This is the first step towards a possible market investigation...
  • 28 May 2026
  • News

The Norwegian Competition Authority is reviewing the banking market

The Norwegian Competition Authority has launched a review of competition in the country's banking market, and this is the first step towards a possible market investigation...
  • 27 May 2026
  • News

Comments sought on the merger of TVG Zimsen / Eimskips and Cargo Express

The Competition Authority is reviewing the merger between TVG Zimsen, Eimskip and Cargo Express. Cargo Express primarily sells transport services by freight flight...
  • 26 May 2026
  • News

In light of the coverage of the „Competition Authority's rules“ and mass redundancies

In media coverage of the collective redundancies at Berjaya Hotels Iceland, in connection with a possible takeover of the operation of Berjaya hotels by Icelandair Hotels, it has been reported, among other things, that...
  • 22 May 2026
  • News

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution.

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution in its marketing and pricing offers at a sensitive time when a new entrant is testing the waters in the market...
  • 22 May 2026
  • News

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

The Competition Authority has concluded its review of Kaldalóns hf.'s acquisition of all properties owned by FÍ Fasteignafélags slhf. The Authority's conclusion is that the merger...
  • 11 May 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports and publications
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.