Um merkið
Merki Samkeppniseftirlitsins ber með sér styrk, vigt og stöðugleika sem endurspeglar stofnunina vel sem yfirvald með valdbeitingarheimildir. Með merkið tekur Samkeppniseftirlitið opinberlega upp skammstöfunina „SKE“ sem hefur verið viðloðandi stofnunina í mörg ár.
Kjarninn í merkinu er þetta form sem er túlkun á tilvitnuninni „One is a monopoly, two is competition“. Formið táknar flæði markaða og færslu úr óvirkri samkeppni yfir í virka samkeppni, úr einum valkosti í fleiri fyrir neytendur og úr einni leið sem aðilar geta farið í markaðsþáttöku í fleiri. Hornéttu línurnar tákna lögin og reglurnar sem Samkeppniseftirlitið starfar eftir.
„Golden Ratio“, eða gullinsnið, er sérstakt hlutfall sem finnst í náttúrunni, hönnun og arkitektúr og er að rekja aftur í aldir til stærðfræðinga. Gullinsnið er 1.618 á móti 1 og býr til form og hlutföll sem jafnvægi er á og mannsauganu þykir náttúruleg. Sterk tenging er á milli laga og reglna og gullinsniðs í gegnum jafnvægið en vogaskálarnar eru til að mynda eitt af elstu táknum lögfræðinnar.
Merkið er hannað af Hello Goodbye árið 2026
Merkið er hannað af Hello Goodbye árið 2026