Samkeppni Logo

Kvörtun Og fjarskipta hf. (Vodafone) um meinta misnotkun Landssíma Íslands hf. á markaðsráðandi stöðu sinni á markaði fyrir farsímaþjónustu

Reifun

Samkeppnisyfirvöldum barst erindi frá Vodafone, þar sem því var haldið fram að Landssími Íslands hf. hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína í tengslum við farsímaþjónustu. Í málinu lá fyrir að Vodafone hafði boðið íbúum Akraness sérstakt kynningartilboð á farsímaþjónustu. Skömmu síðar kynnti Landssíminn íbúum Akraness tilboð á farsímaþjónustu. Í niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins kom m.a. fram að tilboð fyrirtækjanna væru að ýmsu leyti ólík og að ekki væri unnt að líta svo á að Landsíminn hefði með tilboði sínu undirboðið Vodafone. Taldi Samkeppniseftirlitið ekkert benda til þess að tilgangur tilboðs Landssímans hefði verið að þröngva Vodafone út af markaði fyrir farsímaþjónustu við einstaklinga heldur hefði umrætt tilboð verið þáttur í viðbrögðum fyrirtækisins við tilboði Vodafone. Var það mat Samkeppniseftirlitsins að viðbrögð Landssímans í málinu hefðu verið hófleg og ekki falið í sér brot á 11. gr. samkeppnislaga. Taldi Samkeppniseftirlitið ekki ástæðu til íhlutunar í málinu. 

Ákvarðanir
Málsnúmer

10 / 2006

Dagsetning
31. mars 2006
Fyrirtæki

Landssími Íslands hf

Og fjarskipti hf. (Vodafone)

Atvinnuvegir

Fastanet (grunnnet og þjónusta)

Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun

Málefni

Markaðsyfirráð

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.