Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna Jómfrúrinnar eignarhaldsfélags ehf. og Snaps ehf. Bæði félögin reka veitingastaði, annars vegar Jómfrúna og hins vegar Snaps. Jómfrúin eignarhaldsfélag ehf. hefur eignast 100% hlut í Snaps ehf. og fer því með yfirráð yfir félaginu í heild.
Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni á mörkuðum málsins og leiði ekki til myndunar eða styrkingar á markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir samruninn ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans.
12 / 2016
Jómfrúin eignarhaldsfélag ehf.
Snaps ehf.
Ferðaþjónusta
Samgöngur og ferðamál
Samrunamál
"*" indicates required fields