Samkeppniseftirlitinu barst tilkynning um kaup DM ehf. á Transport, toll og flutningsmiðlun ehf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fóla kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og féll samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna í ljósi þess að DM ehf. og Penninn hf. eru undir sameiginlegum yfirráðum og þar með eru veltuskilyrði ákvæðisins uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gáfa hins vegar ekki til kynna að samningurinn myndi raska samkeppni. Í ljósi þessa var það mat eftirlitsins að ekki væri ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.
13 / 2007
DM ehf.
Toll og flutningsmiðlun ehf.
Transport
Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta
Ýmis þjónusta sem ekki er tilgreind annars staðar
Samrunamál
"*" gefur til kynna skyldusvið