Samkeppniseftirlitið
hefur haft til umfjöllunar yfirfærslu á öllu hlutafé Dælunnar ehf. til Ports I
ehf. Dælan ehf. er einkahlutafélag, stofnað árið 2018 í tengslum við kaup Einis
ehf. á vörumerkinu „Dælan“, 5 eldneytisstöðvum af Festi hf., sem staðsettar eru
á höfuðborgarsvæðinu, tilteknu lausafé og samningum m.a. um olíudreifingu og
kaup á eldsneyti. Port I ehf. er eignarhaldsfélag, stofnað árið 2018, sem
fjárfestir í öðrum félögum sem hafa rekstur með höndum. Eigandi Ports I er
Barone I ehf. sem jafnframt á fyrirtækið Löður ehf. sem sérhæfir sig í
bílaþvotti.
Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat
Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni og leiði ekki
til myndunar markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir hann ekki til þess að samkeppni á
markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur
til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c. samkeppnislaga nr.
44/2005.
16 / 2019
Dælan ehf.
Port I ehf.
Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
Olíuvörur og gas
Samrunamál
"*" gefur til kynna skyldusvið