Landsbankinn tók yfir Pizza Pizza sem hefur starfrækt veitingastaði undir heitinu Domino´s. Það var niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að yfirtakan raskaði samkeppni og að nauðsynlegt væri að setja samrunanum skilyrði. Féllust samrunaaðilar á að hlíta þeim skilyrðum sem sett eru fram í ákvörðuninni. Um er að ræða ítarleg skilyrði, sem miða að því að draga úr samkeppnisröskun sem stafað getur af eignarhaldi bankans á fyrirtækinu. Hefur Landsbankinn fallist á að hlíta þeim skilyrðum sem sett eru fram í ákvörðuninni, með undirritun sáttar. Á meðal skilyrða má nefna að lögð er sú skylda að selja Pizza Pizza eins fljótt og auðið er. Jafnframt er mælt fyrir um ýmis skilyrði sem ætlað er að koma í veg fyrir mögulega samhæfingu í viðskiptastefnu atvinnufyrirtækja undir yfirráðum Landsbankans og tryggja að þau starfi áfram sem sjálfstæðir keppinautar á markaði.
17 / 2011
Pizza Pizza ehf.
Matvörur
Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
Samrunamál
"*" indicates required fields