Samkeppni Logo

Kaup SÍA III slhf. á hlut í Stál í stál ehf.

Reifun

Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar kaup SÍA III slhf. á 70% af hlutafé í Stál í stál ehf. Samhliða fjárfestingu í félaginu gera SÍA III og SA ehf. (seljandi) með sér hluthafasamkomulag sem leiðir til þess að þessi félög fara sameiginlega með yfirráð yfir Stál í stál. Í samrunaskrá segir að starfsemi SÍA III sé fjárfestingastarfsemi og markmið þess sé að fjárfesta í traustum og arðbærum fyrirtækjum. SÍA III er samlagshlutafélag og eru hluthafar félagsins að mestu fagfjárfestar, þá aðallega lífeyrissjóðir. Á grundvelli rekstrarsamnings SÍA III við Stefni hefur fyrirtækið víðtæka aðkomu að sjóðnum og hníga sterk rök til þess að Stefnir fari með yfirráð yfir sjóðnum í skilningi samkeppnislaga. Stefnir er dótturfélag Arion banka og er fyrirtækið stærsta sjóðastýringafyrirtæki landsins með um 350 ma. króna í virkri stýringu. 

Það er mat Samkeppniseftirlitsins að nauðsynlegt sé að setja umræddum samruna skilyrði. Skilyrðunum er ætlað að tryggja sjálfstæði Stál í stál sem keppinautar á markaði gagnvart Arion banka. Þá er jafnframt kveðið á um tiltekna meðferð á trúnaðarupplýsingum gagnvart þeim aðilum sem kunna að eiga hluti í öðrum fyrirtækjum sem starfa á tengdum samkeppnismörkuðum.

Ákvarðanir
Málsnúmer

21 / 2018

Dagsetning
26. júní 2018
Fyrirtæki

SÍA III slhf.

Stál í stál ehf.

Atvinnuvegir

Fjármálaþjónusta

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.