Samkeppniseftirlitið tók afstöðu til samruna Umbreytingar II slhf., AU 23 ehf. og Hótel Hamars ehf.
AU 23 er eignarhaldsfélag en félagið hefur ekki haft neinn rekstur á höndum síðan það var stofnað. Félagið er í fullri eigu Umbreytingar II slhf. sem er framtaksjóður í rekstri Alfa Framtaks ehf.
Hótel Hamar rekur samnefnt hótel ásamt veitingastað við samnefndan golfvöll rétt fyrir utan Borgarnes.
Félögin starfa því á ólíkum mörkuðum, en að mati Samkeppniseftirlitsins hefur ekkert komið fram við rannsókn málsins sem gefur tilefni til að skilgreina markaði málsins með öðrum hætti en samrunaaðilar hafa talið og gert hefur verið í fyrri ákvörðunum Samkeppniseftirlitsins. Þar sem ekki er skörun í starfsemi samrunaaðila eða félaga í samstæðu þeirra, né er kaupandi að taka yfir starfsemi fyrirtækis sem framleiðir og/eða selur aðföng fyrir starfsemi hins, er hvorki um láréttan né lóðréttan samruna að ræða. Ljóst er því að fjárfesting og kaup AU23 á Hótel Hamars telst til samsteypusamruna í samkeppnisréttarlegum skilningi.
Það er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að engar vísbendingar séu um að samruninn komi til með að hindra virka samkeppni. Af þeim sökum sér eftirlitið ekki ástæðu til þess að aðhafast vegna þessa samruna.
21 / 2023
AU 23 ehf.
Hótel Hamar ehf.
Umbreyting ll slhf.
Ferðaþjónusta
Samgöngur og ferðamál
Samrunamál
"*" indicates required fields