„Með vísan til 2. mgr. 14. gr. samkeppnislaga nr. 8/1993 mælir
Samkeppnisráð fyrir um að fjárhagslegur aðskilnaður fari fram milli
sjúkrahússapóteks Landspítalans og annars reksturs spítalans með eftirfarandi
hætti eigi síðar en 1. janúar 1997:
1. Starfsemi sjúkrahússapóteks verði í sérstakri einingu innan
sjúkrahússins. Reikningshald apóteks skal vera sjálfstætt og reikningsskil gerð
í samræmi við meginreglur laga um ársreikninga. Reikningsskil sjúkrahússapóteks
skulu liggja fyrir opinberlega með sambærilegum hætti og almennt gerist.
2. Þegar fjárhagslegur aðskilnaður á sér stað skal gera
stofnefnahagsreikning. Þær eignir sem sjúkrahúsið leggur apótekinu til skulu
yfirfærðar á markaðsverði ef þess er kostur, annars á endurkaupsverði að
frádregnum hæfilegum afskriftum.
3. Skuldir sjúkrahússapóteks við Landspítala skulu bera markaðsvexti en
óheimilt er að apótek skuldi sjúkrahúsinu annað en lán vegna yfirtöku eigna í
upphafi svo og lán vegna eðlilegra viðskipta.
4. Ef sjúkrahússapótek nýtir sér yfirstjórn, stoðdeildir, fasteignir,
tölvuvinnslu eða annað sameiginlega með sjúkrahúsinu skal greiða fyrirþað eins
og um viðskipti milli óskyldra aðila væri að ræða. Ef markaðsverð liggur ekki
fyrir skal miða við kostnaðarverð að viðbættri hæfilegri álagningu.“
23 / 1996
Apótekarafélag Íslands
Almannatryggingar
Lyf, stoðtæki (t.d. gleraugu) og tengdar vörur
Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
Samkeppni og hið opinbera
"*" gefur til kynna skyldusvið