Í ákvörðuninni er gerð grein fyrir sátt sem eftirlitið hefur gert við Arion banka um aðgerðir til þess að efla samkeppni í viðskiptabankaþjónustu. Þær aðgerðir sem kveðið er á um í sáttinni miða einkum að því að:
1. Draga úr kostnaði sem viðskiptavinir verða fyrir þegar skipt er um viðskiptabanka.
2. Stuðla að virkara samkeppnisaðhaldi af hálfu einstaklinga og lítilla fyrirtækja með þeim sem veita viðskiptabankaþjónustu á Íslandi.
3. Vinna gegn aðstæðum sem rennt gætu stoðum undir þögla samhæfingu á markaði/mörkuðum fyrir viðskiptabankaþjónustu.
Aðgerðirnar sem Arion banki tekst á hendur með sáttinni eru í öllum meginatriðum hliðstæðar þeim aðgerðum sem kveðið er á um í sátt Samkeppniseftirlitsins við Landsbankann (sjá vefslóð að frétt hér: http://www.samkeppni.is/utgafa/frettir/nr/2943).
Með sáttinni skuldbindur Arion banki sig nánar tiltekið til að fylgja eftirfarandi skilyrðum í starfsemi sinni:
Uppgreiðslugjöld verða ekki lögð á umframgreiðslur skuldara inn á nein ný né útistandandi lán einstaklinga og lítilla fyrirtækja sem bera breytilega vexti, óháð því undir hvaða lögum viðkomandi lán voru upphaflega veitt.
Til viðbótar við framangreind skilyrði kveða nýsett lög um fasteignalán neytenda (nr.118/2016) á um að bönkum sé óheimilt að ákveða lántökugjöld sem hlutfall af lánsfjárhæð, líkt og tíðkast hefur. Við meðferð frumvarpsins sem varð að umræddum lögum beitti Samkeppniseftirlitið sér fyrir því að lagt yrði bann við þessu, sbr. umsögn eftirlitsins til efnahags- og viðskiptanefndar, dags. 7. janúar 2016. Varð löggjafinn við þeim óskum.
Sú sátt sem hér er kynnt felur jafnframt í sér innlegg í stefnumörkun sem stjórnvöld og bankarnir standa nú frammi fyrir á fjármálamarkaði í tengslum við breytingar á eignarhaldi bankanna og öra þróun í fjármálaþjónustu á alþjóðavettvangi.
24 / 2017
Arion banki hf.
Fjármálaþjónusta
Viðskiptabankaþjónusta
Markaðsyfirráð
"*" gefur til kynna skyldusvið