Samkeppni Logo

Kaup Sameyjar Holding ehf. á Samey sjálfvirknimiðstöð ehf.

Reifun

Með ákvörðuninni var tekin afstaða til samruna Sameyjar Holding ehf. og Sameyjar sjálfvirknimiðstöðvar ehf. Samhliða samrunanum öðlast Sjávarsýn ehf. og UAB LVG Holding sameiginleg yfirráð yfir Samey Holding. Samey Holding var stofnað í tilefni af þeim viðskiptum sem hér eru til umfjöllunar, Samey býður upp á heildarlausnir til sjálfvirknivæðingar, Sjávarsýn fjárfestir í öðrum félögum sem hafa rekstur með höndum og LVG er erlent félag sem stofnað var árið 2021 í tengslum við fyrirhugaða endurskipulagningu Lavango samstæðunnar. Ekki eru vísbendingar um að aðilar málsins hafi eða muni öðlast markaðsráðandi stöðu með samruna þessum og teljast samkeppnisleg áhrif hans óveruleg enda starfa þeir að miklu leyti á ótengdum mörkuðum. Af þeim sökum var það mat Samkeppniseftirlitsins að ekki væri tilefni til íhlutunar.

Ákvarðanir
Málsnúmer

24 / 2021

Dagsetning
25. júní 2021
Fyrirtæki

Samey Holding ehf.

Samey sjálfvirknimiðstöð ehf.

Sjávarsýn ehf

UAB LVG Holding

Atvinnuvegir

Iðnaðarframleiðsla, ekki tilgreind annars staðar

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.