Með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 25/2017, sem birt er í dag, er gerð grein fyrir sátt sem eftirlitið hefur gert við Íslandsbanka um aðgerðir til þess að efla samkeppni í almennri viðskiptabankaþjónustu. Áður hafði Samkeppniseftirlitið lokið hliðstæðum sáttum við Landsbankann og Arion banka. Líkt og í sáttunum við þá miða þær aðgerðir sem kveðið er á um í sáttinni við Íslandsbanka einkum að því að:
Draga úr kostnaði sem viðskiptavinir verða fyrir þegar skipt er um viðskiptabanka.
Stuðla að virkara samkeppnisaðhaldi af hálfu einstaklinga og lítilla fyrirtækja með þeim sem veita viðskiptabankaþjónustu á Íslandi.
Vinna gegn aðstæðum sem rennt gætu stoðum undir þögla samhæfingu á markaði/mörkuðum fyrir viðskiptabankaþjónustu.
Aðgerðirnar sem Íslandsbanki tekst á hendur með sáttinni eru í öllum meginatriðum hliðstæðar þeim aðgerðum sem kveðið er á um í sáttum Samkeppniseftirlitsins við Landsbankann.
Með sáttinni skuldbindur Íslandsbanki sig nánar tiltekið til að fylgja eftirfarandi skilyrðum í starfsemi sinni:
Til viðbótar við framangreind skilyrði kveða nýsett lög um fasteignalán neytenda (nr.118/2016) á um að bönkum sé óheimilt að ákveða lántökugjöld sem hlutfall af lánsfjárhæð, líkt og tíðkast hefur. Við meðferð frumvarpsins sem varð að umræddum lögum beitti Samkeppniseftirlitið sér fyrir því að lagt yrði bann við þessu, sbr. umsögn eftirlitsins til efnahags- og viðskiptanefndar, dags. 7. janúar 2016. Varð löggjafinn við þeim óskum.
Sáttirnar við Íslandsbanka, Arion banka og Landsbankann fela jafnframt í sér innlegg í stefnumörkun sem stjórnvöld og bankarnir standa nú frammi fyrir á fjármálamarkaði í tengslum við breytingar á eignarhaldi bankanna og öra þróun í fjármálaþjónustu á alþjóðavettvangi.
25 / 2017
Íslandsbanki hf.
Fjármálaþjónusta
Viðskiptabankaþjónusta
Markaðsyfirráð
"*" gefur til kynna skyldusvið