Samkeppni Logo

Kaup 1912 ehf. á Emmessís ehf.

Reifun

Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samrunann kaup 1912 ehf. á hluta í Emmessís ehf. 1912 ehf. er móðurfélag tveggja félaga, þ.e. Nathan og Olsen hf. og Ekran ehf. Nathan og Olsen hf. rekur heildsölu sem selur dagvöru og snyrtivöru til smásöluverslana og ásamt markaðssetningu á þeim vörum sem heildsala félagsins tekur til. Emmessís ehf. rekur ísgerð og selur ís hér á landi.

Að undangenginni rannsókn og þar að auki með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni og leiði ekki til myndunar á markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir hann ekki til þess að samkeppni á markaði muni raskast að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c. samkeppnislaga nr. 44/2005.

Ákvarðanir
Málsnúmer

25 / 2019

Dagsetning
23. júlí 2019
Fyrirtæki

1912 ehf.

Emmessís hf

Atvinnuvegir

Matvörur

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.