Samkeppni Logo

Brot Símans hf. á skilyrðum í sáttum við Samkeppniseftirlitið við sölu á Enska boltanum á Símanum Sport

Reifun

Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Síminn hf. hefði
brotið tvær sáttir sem fyrirtækið gerði við eftirlitið á árinu 2015. Með
sáttunum samþykkti Síminn hf. að hlíta tilteknum skilyrðum. Þau skilyrði
bönnuðu Símanum m.a. að tvinna saman fjarskiptaþjónustu og línulegt
áskriftarsjónvarp (3. gr. ákvörðunar nr. 20/2015), skylduðu Símann til þess að
halda ólíkum þjónustuþáttum aðgreindum (19. gr. ákvörðunar nr. 6/2015), og
tryggja að þjónustuflutningur viðskiptavina til keppinauta myndi ekki hafa
áhrif á önnur kjör þeirra hjá Símanum hf. (20. gr. ákvörðunar 6/2015). Með því
að selja Enska boltann á Símanum Sport sem hluta af Heimilispakkanum með þeirri
verðlagningu og viðskiptakjörum sem rannsóknin leiddi í ljós, taldi
Samkeppniseftirlitið að Síminn hf. hefði brotið þessi skilyrði. Þá væri um að
ræða ítrekað brot á 3. gr. sáttar í ákvörðun nr. 20/2015. Sáttir eru bindandi
fyrir fyrirtæki sem undir þær gangast og mjög brýnt er að fyrirtæki virði
skilyrði sátta. Er umræddum skilyrðum m.a. ætlað að koma í veg fyrir að Síminn
geti með framangreindum hætti takmarkað samkeppni almenningi til tjóns. Þá
taldi Samkeppniseftirlitið brot Símans alvarleg og sektaði fyrirtækið um 500
milljónir króna.

Ákvarðanir
Málsnúmer

25 / 2020

Dagsetning
28. maí 2020
Fyrirtæki

Síminn hf.

Atvinnuvegir

Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun

Ljósvakamiðlar

Málefni

Annað

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.