Samkeppni Logo

Kaup Geysis Green Energy á Jarðborunum

Reifun

Samkeppniseftirlitinu var tilkynnt um kaup Geysis Green Energy hf. (GGE) á öllu hlutafé í Jarðborunum hf. þann 8. ágúst 2007. Undir meðferð málsins breyttist uppbygging GGE verulega vegna samruna við Reykjavík Energy Invest hf. (REI). Var síðar fallið frá þeim samruna. Tilkynntu aðilar ekki um þessar breytingar á starfsemi GGE svo sem skylt er skv. reglum um tilkynningu samruna nr. 881/2005. Tafðist afgreiðsla Samkeppniseftirlitsins á samruna GGE og Jarðborana af þessum sökum. Fullnægjandi upplýsingar bárust loks 19. febrúar 2008. Efnisleg rannsókn á áhrifum samrunans leiddi ekki í ljós nein samkeppnisleg vandkvæði þannig að ekki er tilefni til íhlutunar Samkeppniseftirlitsins.

Ákvarðanir
Málsnúmer

29 / 2008

Dagsetning
7. maí 2008
Fyrirtæki

Geysir Green Energy ehf.

Jarðboranir hf.

Atvinnuvegir

Orkumál

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.