|
Með ákvörðun þessari hefur Samkeppniseftirlitið tekið afstöðu til kaupa Myllunnar-Ora ehf. á Gunnars ehf. í samræmi við ákvæði 17.gr. samkeppnislaga. Áhrifa samrunans gætir aðallega á mörkuðum fyrir hreint majónes og aðrar tilbúnar kaldar sósur. Á grundvelli fyrirliggjandi gagna er það mat Samkeppniseftirlitsins að ekki séu vísbendingar um að markaðsráðandi staða verði til eða hún styrkist í kjölfar samrunans þannig að sameinað fyrirtæki geti hagað sér að töluverðu leyti án tillits til keppinauta eða viðskiptavina. Sterkir keppinautar starfa á skilgreindum mörkuðum málsins, stærri en hið sameinaða fyrirtæki, bæði í framleiðslu og innflutningi á umræddum vörum. Þá er ekkert sem bendir til þess að samruninn raski samkeppni með umtalsverðum hætti. Af þeim sökum telur Samkeppniseftirlitið hvorki ástæðu til þess að aðhafast vegna samrunans né rannsaka hann frekar og lýkur því meðferð málsins á fyrsta fasa. |
3 / 2025
Gunnars ehf.
Myllan-Ora ehf.
Matvörur
Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
Samrunamál
"*" gefur til kynna skyldusvið