Samkeppni Logo

Erindi Norðurljósa samskiptafélags hf. um samkeppnisstöðu leyfisbundins útvarpsrekstrar einkaaðila gagnvart Ríkisútvarpinu

Reifun

Erindi
barst frá Norðurljósum samskiptafélagi hf. þar sem því var beint til
samkeppnisyfirvalda að taka til skoðunar starfsemi Ríkisútvarpsins með hliðsjón
af samkeppnislögum.
Málshefjandi taldi að ákvæði útvarpslaga um útvarpsgjald til handa
Ríkisútvarpinu fæli í sér óhæfilega takmörkun á atvinnufrelsi og í reynd hreina
aðgangshindrun. Hin lögbundnu sérréttindi Ríkisútvarpsins stríddu því gegn
markmiðum samkeppnislaga eins og þau væru skilgreind í 1. gr. laganna. Í
erindinu var gerð sú krafa að samkeppnisyfirvöld gripu þegar til aðgerða
gagnvart Ríkisútvarpinu, líkt og gert hafi verið gagnvart öðrum stofnunum og
fyrirtækjum ríkisins, og tryggðu raunhæfan samkeppnisgrundvöll einkarekinna
ljósvakamiðla annars vegar og Ríkisútvarpsins hins vegar m.a. með fyrirmælum um
fjárhagslegan aðskilnað. Samkeppnisráð taldi ekki lagaskilyrði til íhlutunar.

Í úrskurði í máli nr. 3/2002 var staðfest ákvörðun samkeppnisráðs
nema hvað lagt var fyrir samkeppnisráð að taka afstöðu til þess hvor ástæða
væri til að beita 19. gr. samkeppnislaga vegna viðskiptahindrana sem fælust í
lögum nr. 122/2000 um Ríkisútvarpið. 

Ákvarðanir
Málsnúmer

39 / 2001

Dagsetning
4. desember 2001
Fyrirtæki

Norðurljós samskiptafélag hf

Ríkisútvarpið

Atvinnuvegir

Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun

Málefni

Samkeppni og hið opinbera

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.