Kaup Nordic Visitor hf. á Iceland Travel ehf.
Starfsemi fyrirtækjanna felst í rekstri ferðaskrifstofa og ferðaskipulagningu,
til smásölu og heildsölu á ferðum til Íslands og innan Íslands, hvort sem er
til erlendra ferðaskrifstofa til endursölu eða til erlendra ferðamanna.
Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins var sú að með samrunanum yrði ekki til
markaðsráðandi staða eða umtalsverð röskun á samkeppni og því ekki tilefni til
íhlutunar. Með samrunatilkynningu upplýstu aðilar einnig um væntanlega
minnihlutaeign fjárfestingasjóðsins AU1 og Alfa framtaks ehf., í Nordic Visitor
hf., á grundvelli áskriftarsamnings og réttinda samkvæmt hluthafasamkomulagi,
kæmi samruninn til framkvæmda. Aðkoma AU1 og Alfa framtaks kom til skoðunar við
mat á áhrifum samrunans en Samkeppniseftirlitið taldi ekki ástæðu til að gera
athugasemdir við hin neikvæðu yfirráð.
39 / 2021
Iceland Travel ehf.
Nordic Visitor hf.
Ferðaþjónusta
Samgöngur og ferðamál
Samrunamál
"*" gefur til kynna skyldusvið