Að mati samkeppnisráðs þótti sýnt fram á að Póstur og sími hefði með
samkeppnishindrandi athöfnum í ýmsum tilvikum reynt að útiloka keppinaut
stofnunarinnar á póstdreifingarmarkaðnum, Póstdreifingu ehf., frá markaðnum.
Með þessum athöfnum hefði Póstur og sími misbeitt markaðsráðandi stöðu sinni í
póstdreifingu í skilningi 17. gr. samkeppnislaga. Með vísan til misbeitingar Póst- og
símamálastofnunar á markaðsráðandi stöðu sinni og með skírskotun til 2. mgr.
14. gr. og 17. gr. samkeppnislaga beindi samkeppnisráð eftirfarandi fyrirmælum
til Póst- og símamálastofnunar (síðar Pósts og Síma hf.) :
1„Starfsemi þeirrar póstþjónustu Póst- og
símamálastofnunar (síðar Pósts og síma hf.) sem er utan einkaréttar skal vera í
sérstakri einingu innan stofnunarinnar. Skal reikningshald einingarinnar þá
vera sjálfstætt og reikningsskil hennar gerð í samræmi við meginreglur laga um
ársreikninga.
2Við aðskilnaðinn skal gera stofnefnahagsreikning um
samkeppnisreksturinn. Eignir sem samkeppnisreksturinn yfirtekur skulu færðar á
markaðsverði ef kostur er, annars á endurkaupsverði að frádregnum hæfilegum
afskriftum. Skuldir við Póst- og símamálastofnun (síðar Póst og síma hf.) skulu
bera markaðsvexti en óheimilt er að samkeppnisstarfsemin skuldi
einkaleyfisstarfseminni annað en lán vegna yfirtöku eigna í upphafi svo og lán
vegna eðlilegra viðskipta.
3Ef samkeppnisstarfsemin nýtir sér yfirstjórn,
stoðdeildir, dreifingarkerfi, fasteignir, tölvuvinnslu og annað sameiginlega
með annarri starfsemi skal greiða fyrir það í samræmi við allan hlutfallslegan
kostnað er varðar samkeppnisreksturinn að viðbættri hæfilegri álagningu.
Reikningsskil samkeppnisstarfseminnar skulu liggja fyrir opinberlega með sambærilegum
hætti og almennt gerist og birtast í ársskýrslu Póst- og símamálastofnunar
(síðar Pósts og síma hf.).
4Þeir starfsmenn samkeppnisstarfseminnar sem fara með
daglega stjórnun skulu ekki jafnframt gegna starfi hjá öðrum rekstrarsviðum
Pósts og síma.“
Í úrskurði áfrýjunarnefndar nr. 1/1997 var ákvörðunin staðfest.
42 / 1996
Póstdreifing ehf
Póstþjónusta
Samgöngur og ferðamál
Samkeppni og hið opinbera
"*" indicates required fields