Samkeppni Logo

Kaup O.W. Bunker & Trading A/S á Grupo ABC Atlantic Bunker S.L.

Reifun

Með bréfi, dags. 7. nóvember sl., var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um kaup O.W. Bunker og Trading A/S í Danmörku á öllu hlutafé Grupo ABC Atlantic Bunker S.L. Að mati Samkeppniseftirlitsins felur kaupsamningurinn í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr laganna, þar sem veltuskilyrði eru uppfyllt.


Með vísan til 1. mgr. 17. gr. samkeppnislaga hefur verið lagt mat á hvort samruninn hindri virka samkeppni með því að markaðsráðandi staða verði til eða að slík staða styrkist. Athugun Samkeppniseftirlitsins hefur leitt í ljós að ekki sé ástæða til að aðhafast vegna kaupa OW á ABC. Er vísað til þess að aðeins lítill hluti veltu ABC og OW er hér á landi og virðist ekki vera skörun á starfsemi félaganna sem hefur í för með sér röskun á samkeppni.  Þá hafa ekki komið fram önnur atriði sem benda til þess að samruninn geti raskað samkeppni.  Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna umrædds samruna á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.

Ákvarðanir
Málsnúmer

43 / 2006

Dagsetning
30. nóvember 2006
Fyrirtæki

Grupo ABC Atlantic Bunker S.L.

O.W. Bunker & Trading A/S

Atvinnuvegir

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.