Samkeppniseftirlitið hefur mælt fyrir um að Slysavarnafélagið Landsbjörg skuli skilja að fjárhagslega alla starfsemi félagsins sem rekin er í samkeppni við aðila á markaði annars vegar, þ.e. umsýslu vegna sölu og þjónustu á sjúkrakössum, flugeldasölu og sölu jólatrjáa og almenna björgunar- og slysavarnarstarfsemi hins vegar sem að hluta til er rekin af almannafé. Með fjárhagslegum aðskilnaði á að vera tryggt að samkeppnisrekstur Slysavarnafélagsins Landsbjargar sé ekki niðurgreiddur með fé frá starfsemi samtakanna sem nýtur opinberra fjárframlaga . Ákvörðun
55 / 2007
Slysavarnafélagið Landsbjörg
Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta
Ýmis þjónusta sem ekki er tilgreind annars staðar
Samkeppni og hið opinbera
"*" indicates required fields