Samkeppni Logo

Kaup Heilsu ehf., á Heilsuhorninu Ninna ehf.

Reifun

Þann 21. september 2007 barst Samkeppniseftirlitinu samrunaskrá þar sem tilkynnt var um kaup Heilsu ehf. á öllu hlutafé í Heilsuhorninu Ninna ehf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fólu kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna, þar sem veltuskilyrði eru uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gáfu hins vegar ekki til kynna að samruninn myndi raska samkeppni. Í ljósi þessa var það mat eftirlitsins að ekki væri ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.

Ákvarðanir
Málsnúmer

57 / 2007

Dagsetning
23. október 2007
Fyrirtæki

Heilsa ehf.

Heilsuhornið ehf.

Atvinnuvegir

Matvörur

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.