Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna Reirs ehf. (hér eftir Reir) og Gluggasmiðjunnar ehf. (hér eftir Gluggasmiðjan). Samruninn var tilkynntur með svokallaðri styttri samrunaskrá þann 9. janúar 2018. Samruninn felur í sér að Reir kaupir 79,323% hlutafjár í Gluggasmiðjunni. Með samrunaskránni fylgdi ennfremur bréf þar sem samrunaaðilar óskuðu eftir undanþágu frá banni við því að samruninn kæmi framkvæmda á meðan Samkeppniseftirlitið fjallaði um hann, sbr. 4. mgr. 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Var samrunaaðilum veitt undanþágan með bréfi dagsett 12. janúar 2018. Gluggaverksmiðjan er rótgróið fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og viðhaldi á gluggum og hurðum til handa byggingaverktaka, einstaklinga og fyrirtækja hér á landi. Reir er eignarhaldsfélag sem starfar einkum við verðbréfaviðskipti ásamt því að taka að sér tilfallandi byggingarverkefni. Eftir rannsókn á samrunanum var það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að ekki væri ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.
6 / 2018
Gluggasmiðjan ehf.
Reir ehf.
Iðnaðarframleiðsla, ekki tilgreind annars staðar
Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
Samrunamál
"*" gefur til kynna skyldusvið