Samkeppni Logo

Kvörtun 365 hf. á samningi sem Ríkisútvarpið ohf. og Árvakur hf. gerðu við Capacent Gallup.

Reifun

Þann 20. apríl 2007, barst Samkeppniseftirlitinu erindi þar sem 365 hf. (365) kvartaði yfir samningi sem Ríkisútvarpið ohf. (RÚV) og Árvakur hf. gerðu við Capacent Gallup um gerð og birtingu vikulegra skoðanakannana á fylgi stjórnmálaflokkanna í aðdraganda alþingiskosninganna. 365 taldi að umræddur samningur stæðist hvorki ákvæði samkeppnislaga né ákvæði laga um Ríkisútvarpið ohf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fellur samningurinn um gerð og birtingu umræddra fylgiskannanna innan hins rúma almannaþjónustuhlutverks RÚV. Þá er ekki talið að samstarf RÚV við Árvakur í þessu tilviki fari gegn samkeppnislögum. Ekki eru því taldar forsendur til íhlutunar Samkeppniseftirlitsins vegna málsins.

Ákvarðanir
Málsnúmer

60 / 2007

Dagsetning
2. nóvember 2007
Fyrirtæki

365 Ljósvakamiðlar ehf.

Capacent

Ríkisútvarpiðohf.

Atvinnuvegir

Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun

Málefni

Samkeppni og hið opinbera

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.