Samkeppni Logo

Samruni Kvosar ehf. og Skólavörubúðarinnar ehf.

Reifun

Samkeppniseftirlitinu barst tilkynning um að Kvos ehf., sem m.a. á Prentsmiðjuna Odda hf. og Odda skrifstofuvörur ehf., hefði keypt allt hlutafé í Skólavörubúðinni ehf. Af upplýsingum sem fram koma í tilkynningunni þykir ljóst að við samrunann mun Oddi skrifstofuvörur styrkja stöðu sína á þeim sviðum viðskipta sem eru sala á almennum skrifstofuvörum, s.s. pappír, ritföngum og rekstrarvörum fyrir tölvur. Á hinn bóginn virðist ljóst að samruninn muni ekki hafa skaðleg samkeppnisleg áhrif þar sem helstu keppinautar á sviði heildsölu- og smásöludreifingar á skrifstofuvörum eru mjög öflug fyrirtæki, s.s. Penninn hf. og Office1 Superstore. Með hliðsjón af þessu sem og öðrum gögnum málsins taldi Samkeppniseftirlitið samrunann ekki hindra virka samkeppni í skilningi samkeppnislaga og því ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna hans.

Ákvarðanir
Málsnúmer

8 / 2006

Dagsetning
13. febrúar 2006
Fyrirtæki

Kvos ehf.

Skólavörubúðin ehf.

Atvinnuvegir

Bókaútgáfa og sala

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.