Samkeppni Logo

Kaup Bílanausts hf. á Bæjardekki ehf., Dekki.is ehf. og Hjólbarðaverkstæðinu Dekkinu ehf.

Reifun

Samkeppniseftirlitinu bárust tilkynningar um kaup Bílanausts hf. á Bæjardekki ehf. og Dekki.is annars vegar og Hjólbarðaverkstæðinu Dekkinu ehf. hins vegar. Samkeppniseftirlitið taldi rétt að sameina umfjöllun um samrunana í eina ákvörðun þar sem um væri að ræða kaup Bílanausts á fyrirtækjum á sömu mörkuðum. Að mati Samkeppniseftirlitsins fólu kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og féllu samrunarnir undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar sem veltuskilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Að mati Samkeppniseftirlitsins myndi samlegðaráhrifa samrunanna fyrst og fremst gæta á sviði smásölu, viðgerða og skiptinga á hjólbörðum. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gáfu hins vegar ekki til kynna að samrunarnir myndu hafa skaðleg samkeppnisleg áhrif. Sameiginleg markaðshlutdeild umræddra fyrirtækja á þeim mörkuðum sem um ræðir benti sem slík ekki til markaðsráðandi stöðu. Þá er innflutningur á dekkjum, samkvæmt upplýsingum Samkeppniseftirlitsins, auðveldur og veitir innlendum heild- og smásölum umtalsvert verðaðhald. Í ljósi þessa og með hliðsjón af gögnum málsins og samtölum við aðila á markaðnum var það mat eftirlitsins að ekki væri ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga. 

Ákvarðanir
Málsnúmer

8 / 2007

Dagsetning
21. mars 2007
Fyrirtæki

Bæjardekk ehf. Dekk.is ehf.

Bílanaust ehf.

Hjólbarðaverkstæðið Dekkið ehf.

Atvinnuvegir

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Vélar og tæki

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.