Samkeppni Logo

Ákvörðun um dagsektir vegna vanrækslu Mest ehf. á tilkynningu um samruna

Reifun

Í  desember 2005 átti sér stað tilkynningarskyldur samruni í skilningi 17. gr. samkeppnislaga milli fyrirtækjanna Merkúr ehf. og Steypustöðvarinnar hf. undir merkjum Mest ehf. Þá var í byrjun október 2006 umfjöllun í fréttum um samruna félaganna Mest ehf. og byggingarvöruverslunarinnar Súperbygg ehf. Þrátt fyrir að Samkeppniseftirlitið hafi ítrekað vakið athygli á lögboðinni tilkynningarskyldu Mest ehf. á grundvelli 17. gr. samkeppnislega vegna ofangreindra tveggja samruna hefur eftirlitinu enn ekki borist fullnægjandi tilkynningar vegna þeirra. Með því hefur Mest ehf. vanrækt ótvíræða lagaskyldu um tilkynningu samruna annars vegar og ákvörðun tekna með stoð í 19. gr. samkeppnislaga hins vegar. Af þessum sökum og með heimild í 38. gr. samkeppnislaga hefur  Samkeppniseftirlitið  ákveðið að leggja dagsektir á Mest ehf. Er félaginu gert að greiða 250.000 kr. á dag þar til fullnægjandi samrunatilkynningar hafa borist Samkeppniseftirlitinu.

Ákvarðanir
Málsnúmer

9 / 2007

Dagsetning
27. mars 2007
Fyrirtæki

Merkúr hf.

Mest ehf.

Súperbygg ehf.

Atvinnuvegir

Bygginga- og heimilisvörur (heimilistæki, föt, snyrtivörur)

Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.

Málefni

Samrunamál

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.