Reginn ehf. dótturfélag Landsbankans hf. eignaðist allt hlutafé í Laugahúsum ehf. sem er rekur fasteignir útbúnar til rekstrar líkamsræktarstöðvar. Það var niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að yfirtakan raskaði samkeppni og að nauðsynlegt væri að setja samrunanum skilyrði. Féllust samrunaaðilar á að hlíta þeim skilyrðum sem sett eru fram í ákvörðuninni. Um er að ræða ítarleg skilyrði, sem miða að því að draga úr samkeppnisröskun sem stafað getur af eignarhaldi bankans á fyrirtækinu. Hefur Reginn fallist á að hlíta þeim skilyrðum sem sett eru fram í ákvörðuninni, með undirritun sáttar. Við vinnslu málsins hefur einnig verið höfð hliðsjón af kvörtunum og ábendingum sem Samkeppniseftirlitinu hafa borist.
18 / 2011
Reigin ehf.
Afþreying, íþróttir, happdrætti og fjárhættuspil
Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta
Samrunamál
"*" indicates required fields