SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ LEGGUR 440 mkr. SEKT Á SÍMANN FYRIR BROT Á SAMKEPPNISLÖGUM
– Lagðar eru 390 milljónir króna sektir á Símann fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu á farsímamarkaði. – Lagðar eru 50 milljón króna sektir á Símann fyrir ranga og misvísandi upplýsingagjöf í málinu.
Samkeppniseftirlitið hefur haft til rannsóknar kæru Nova vegna verðlagningu Símans á farsímamarkaði. Í ákvörðun, sem er birt í dag, kemst eftirlitið að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína og þar með brotið gegn 11. gr. samkeppnislaga og 54. gr. EES-samningsins með því að beita keppinauta sína samkeppnishamlandi verðþrýstingi.
7 / 2012
Síminn hf.
Farsímanet (grunnet og þjónusta)
Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun
Markaðsyfirráð
"*" indicates required fields