Samkeppni Logo

Rafræn mæling Capacent ehf. á notkun ljósvakamiðla

Reifun

Í ákvörðun nr. 13/2014 er fjallað um rafræna mælingu Capacent ehf. á hlustun og áhorfi á ljósvakamiðla, þ.e. útvarps- og sjónvarpsútsendingar. Er það mat Samkeppniseftirlitsins að framkvæmd Capacent á mælingunni geti verið til þess fallin að takmarka samkeppni, einkum á markaði fyrir auglýsingar í ljósvakamiðlum. Hefur Capacent undirgengist sátt við Samkeppniseftirlitið vegna málsins. Með ákvörðuninni er framkvæmd mælingarinnar sett tiltekin skilyrði sem einkum er ætlað að auðvelda þátttöku nýrra og minni ljósvakamiðla og birtingaraðila í mælingunni. Þá er með skilyrðunum jafnframt leitast við að tryggja að framsetning gagna úr mælingunni veiti skekki ekki samkeppnisstöðu ljósvakamiðla og að trúnaðarupplýsingar berist ekki á milli keppinauta vegna framkvæmdarinnar við hana.

Ákvarðanir
Málsnúmer

13 / 2014

Dagsetning
19. maí 2014
Fyrirtæki

Capacent ehf.

Atvinnuvegir

Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun

Ljósvakamiðlar

Málefni

Annað

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.