Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Samruni Fagkaupa ehf. og BG Fossberg ehf

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 22/2022
  • Dagsetning: 29/9/2022
  • Fyrirtæki:
    • Fagkaup ehf.
    • BG Fossberg ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Bygginga- og heimilisvörur (heimilistæki, föt, snyrtivörur)
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Með ákvörðuninni var tekin afstaða til samruna Fagkaupa ehf. og BG Fossberg ehf. Starfsemi Fagkaupa felst í innflutningi, dreifingu og sölu á byggingavörum. Aðalstasrfsemi dótturfélags BG Fossberg, Fossberg er smásala á járn- og byggingarvöru í sérverslunum en sú starfsemi skarast á við starfsemi Fagkaupa. Eftir rannsókn á samrunanum varð það mat Samkeppniseftirlitsins að ekki væri tilefni til íhlutunar vegna samrunans þar sem ekki væru vísbendingar um að markaðsráðandi staða væri að myndast eða að samruninn leiddi að öðru leyti til umtalsverðrar röskunar á samkeppni.