Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Samruni Bílaumboðsins Öskju ehf. og Ræsis hf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 60/2008
  • Dagsetning: 16/12/2008
  • Fyrirtæki:
    • Bílaumboðið Askja ehf.
    • Ræsir hf
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Vélar og tæki
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Þann 4. september 2008 barst Samkeppniseftirlitinu samrunatilkynning vegna kaupa Bílaumboðsins Öskju ehf. (Öskju) á lausafé (aðallega vélum og tækjum) af Ræsi hf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. þar sem veltuskilyrði eru uppfyllt.

    Viðræður við samrunaaðila hafa leitt til þess að Askja hefur gengist undir sátt í málinu á grundvelli samkeppnislaga og reglna um málsmeðferð samkeppnisyfirvalda. Sáttin felur í sér skilyrði sem eru að mati Samkeppniseftirlitsins til þess fallin að eyða þeim samkeppnislegu vandamálum sem ella hefðu skapast með kaupunum. Skilyrðin fela það í sér að Öskju er skylt að veita öllum eigendum Mercedes-Benz bifreiða hér á landi viðgerðar- og varahlutaþjónustu óháð því hvar viðkomandi bifreiðar hafa verið keyptar eða hvernig þær voru fluttar til landsins. Einnig er Öskju óheimilt að synja þeim sem þess óska um kaup á varahlutum og viðgerðarþjónustu nema ríkar málefnalegar ástæður séu forsenda sölusynjunarinnar. Þá er Öskju óheimilt við sölu á viðgerðar- og varahlutaþjónustu að láta eigendur eða umráðamenn þeirra Mercedes-Benz bifreiða sem félagið hefur sjálft flutt inn (og/eða áður Ræsir) njóta annars verðs eða betri viðskiptakjara en aðrir viðskiptavinir myndu njóta í sams konar viðskiptum.