Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Samruni Okkar bílaleigu ehf., Toyota á Íslandi ehf. o.fl. og Bílaleigu Kynnisferða ehf

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 39/2025
  • Dagsetning: 1/12/2025
  • Fyrirtæki:
    • Okkar bílaleiga ehf.
    • Bílaleiga Kynnisferða ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Samgöngur og ferðamál
    • Ferðaþjónusta
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Með ákvörðuninni er tekin afstaða til kaupa Okkar bílaleigu ehf. á öllum rekstri og eignum Bílaleigu Kynnisferða ehf.

    Okkar bílaleiga ehf. er að fullu í eigu UK fjárfestinga ehf., sem er m.a. móðurfélag Toyota á Íslandi ehf., Bílanaust ehf., Skorra ehf. o.fl. Lárétt skörun milli samrunaaðila er á markaði fyrir útleigu bifreiða en lóðréttra áhrifa kann einnig að gæta á þeim mörkuðum sem fyrirtækjasamstæða UK fjárfestinga ehf. starfar á.

    Með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum og rannsókn Samkeppniseftirlitsins eru ekki vísbendingar um að samruninn leiði til þess að markaðsráðandi staða verði til eða styrkist, eða að samkeppni verði raskað að öðru leyti með umtalsverðum hætti.