Með bréfi dags. 10. des tilkynnti Sparisjóður Keflavíkur Samkeppniseftirlitinu um kaup sín á Sparisjóð Húnaþings og Stranda. Bréfinu fylgdi samrunaskrá þar sem framsetningin var í samræmi við viðauka í reglum nr. 881/2005 um tilkynningu um samruna. Rannsókn Samkeppniseftirlitsins benti ekki til þess að röskun yrði á samkeppni vegna samruna aðila. Sá Samkeppniseftirlitið því ekki tilefni til þess að aðhafast vegna samrunans.
1 / 2008
Sparisjóður Húnaþings og Stranda
Sparisjóðurinn í Keflavík
Fjármálaþjónusta
Samrunamál
"*" indicates required fields