Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Samruni Samkaupa hf., og Búrs ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 50/2007
  • Dagsetning: 18/9/2007
  • Fyrirtæki:
    • Samkaup hf.
    • Búr ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Matvörur
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Með bréfi Jóhannesar Karls Sveinssonar hrl., dags. 22. maí 2007, var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um samruna Samkaupa hf. og Búrs ehf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar sem veltuskilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gefa hins vegar ekki til kynna að samruninn muni raska samkeppni. Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.