Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup Nýja kaupþings banka hf. á Hafrahlíð ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 7/2009
  • Dagsetning: 20/2/2009
  • Fyrirtæki:
    • Nýi Kaupþing banki hf.
    • Hafrahlíð ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Vélar og tæki
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun Þann 18. febrúar sl. barst Samkeppniseftirlitinu tilkynning vegna samruna Nýja kaupþings banka hf. (hér eftir Nýja kaupþing) og Hafrahlíðar ehf. (hér eftir Hafrahlíð) í samræmi við ákvæði 17. gr. a samkeppnislaga nr. 44/2005. Fullnægði tilkynningin skilyrðum samkeppnislaga og reglna nr. 684/2008 um tilkynningu samruna en félögum sem ekki starfa á sömu mörkuðum er heimilt að skila styttri tilkynningu skv. 6. mgr. 17. gr. a samkeppnislaga vegna samruna. Dótturfélög Hafrahlíðar Hekla ehf. og Hekla fasteignir ehf. komust með samrunanum undir yfirráð Nýja kaupþings. Af samrunatilkynningu mátti ráða að ekki hefði stofnast til yfirráða Kaupþings yfir öðrum keppinautum á viðkomandi mörkuðum. Samkeppniseftirlitið taldi ekki ástæða til þess að aðhafast frekar vegna samrunans.